Hringvegurinn Umferðin hefur aldrei dregist jafn mikið saman og í fyrra.
Hringvegurinn Umferðin hefur aldrei dregist jafn mikið saman og í fyrra. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Umferðin á hringveginum árið 2020 dróst saman um 13,6% miðað við árið 2019. Þetta er langmesti samdráttur sem mælst hefur frá því því Vegagerðin hóf þessar mælingar.

Umferðin á hringveginum árið 2020 dróst saman um 13,6% miðað við árið 2019. Þetta er langmesti samdráttur sem mælst hefur frá því því Vegagerðin hóf þessar mælingar.

Samdrátturinn er tveimur og hálfu sinnum meiri en sá sem mældist á milli áranna 2010 og 2011, að því er fram kemur í frétt á heimasíðu Vegagerðarinnar. Umferðin í desember dróst saman um 7,3 prósent.

Mest dróst umferð saman í fyrra um mælisnið á Austurlandi eða um tæplega 29% en minnst, utan höfuðborgarsvæðis, um Vesturland eða um tæplega 18%.

Af einstaka stöðum varð mestur samdráttur um mælisnið á Mýrdalssandi eða tæplega 72%.

Minnstur varð samdrátturinn, utan höfuðborgarsvæðis, í Kræklingahlíð norðan Akureyrar eða 4,5%.

Umferðin á síðasta ári dróst saman alla vikudaga en mest á sunnudögum eða um rúmlega 18% en minnst á þriðjudögum eða um tæp 11%. Eins og vænta mátti er mest ekið á föstudögum en örlítið óvæntara að minnst var ekið á laugardögum, því alla jafna hafa þriðjudagar haft þá stöðu, segir í frétt Vegagerðarinnar.

Umferðin um 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á hringveginum dróst svipað saman í desember og umferðin á höfuðborgarsvæðinu eða um 7,3%. Mest dróst umferð saman á Suðurlandi eða um tæp 22% en minnst utan höfuðborgarsvæðis um Norðurland, eða um 12%. Ekki hefur mælst minni umferð í desember á hringveginum síðan árið 2016.

Þótt samdrátturinn í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu í desember hafi verið mun minni en mánuðina á undan þá er samdráttur ársins 2020 fjórfalt meiri en áður hefur mælst.

sisi@mbl.is