Sementsverksmiðjan
Sementsverksmiðjan
Sementsverksmiðjan segist í tillkynningu harma óþægindi sem nágrannar fyrirtækisins urðu fyrir í gær þegar sementsryk þyrlaðist upp frá sílói og lagðist yfir nágrenni verksmiðjunnar.

Sementsverksmiðjan segist í tillkynningu harma óþægindi sem nágrannar fyrirtækisins urðu fyrir í gær þegar sementsryk þyrlaðist upp frá sílói og lagðist yfir nágrenni verksmiðjunnar.

Segir í tilkynningunni, að mannleg mistök hafi orðið til þess að sementssíló við Sementsverksmiðjuna á Akranesi yfirfylltist við uppskipun aðfaranótt 5. janúar svo sementsryk þyrlaðist upp og settist á götur, hús og bíla í nágrenni verksmiðjunnar.

Segir fyrirtækið að sement, sem flutt er inn, sé náttúrulegt efni án eiturefna. Rykið sem barst út í umhverfi verksmiðjunnar hafi ekki ógnað heilsu fólks en geti, ef ekkert er að gert, valdið skemmdum á munum og byggingum.

Fram kemur í tilkynningunni, að starfsfólk Sementsverksmiðjunnar hafi frá því á þriðjudag unnið í samvinnu við íbúa, slökkviliðið, Veitur og aðra aðila að því að hreinsa fljótt og vel upp vettvang og eignir fólks til að varna skemmdum og forða frekari óþægindum. Sú vinna hafi gengið vel.

Biður Sementsverksmiðjan þá sem urðu fyrir óþægindum velvirðingar og segist munu gera það sem í valdi hennar stendur til að tryggja að óhapp af þessu tagi endurtaki sig ekki.