Nauðsynlegt Þeir sem prófa að taka alvöru safahreinsun eru yfirleitt ólmir í að endurtaka leikinn. Hægt er að skrá sig á Facebook-síðu Matarbúrs Kaju.
Nauðsynlegt Þeir sem prófa að taka alvöru safahreinsun eru yfirleitt ólmir í að endurtaka leikinn. Hægt er að skrá sig á Facebook-síðu Matarbúrs Kaju. — Morgunblaðið/Eggert
Mikil ásókn er í safahreinsanir á nýju ári enda fólk almennt tilbúið að takast á við nýjar áskoranir og þyrst í taka til í lífsstílnum með hækkandi sól eftir þungan og erfiðan vetur.

Þóra Kolbrá Sigurðardóttir

thora@mbl.is

Svokallaðar safahreinsanir njóta mikilla vinsælda en þær hjálpa líkamanum að hreinsa sig og núllstilla. Að sögn Karenar Jónsóttur sem á og rekur Matbúr Kaju hefur ásóknin farið fram úr björtustu vonum nú í upphafi árs.

„Ég hef venjulega boðið upp á svona hreinsanir tvisvar á ári en nú er ég að fjölga þeim verulega sem er virkilega ánægjulegt enda hafa flestir gott af því að hreinsa líkamann með þessum hætti, segir Kaja en hreinsunin stendur yfir í viku og fá þátttakendur daglegan skammt af samsettum söfum sem hugsaðir eru til að hreinsa og næra líkamann eins vel og kostur er. Eingöngu er notað hágæða lífrænt hráefni en Kaja segir það mikilvægan hluta af hreinsuninni enda sé eitt af markmiðunum að ná sem bestri hreinsun.

Uppljómun á fimmta degi

„Fólk finnur mikinn mun, segir Kaja. „Fyrstu tveir til þrír dagarnir eru erfiðir, sérstaklega þegar fólk er að fara í hreinsun í fyrsta sinn, en á þriðja til fimmta degi verður oft svokölluð uppljómun. Bólgur minnka og jafnvel hverfa, skapið verður léttara og svo verður bara öll líðan svo einstök. Ég fer í safahreinsun tvisvar á ári; á vorin og svo haustin og það heldur mér gangandi,“ segir Kaja um safahreinsunina en slíkar hreinsanir hafa notið mikilla vinsælda og hafa sannað gildi sitt. „Í upphafi var ég ein að vesenast í þessu en í gegnum árin hef ég fengið samferðafólk sem hefur hrifist af safahreinsunni og í dag er þetta orðið að námskeiði sem haldið er tvisvar á ári. Safahreinsunin er ekki megrunarkúr heldur er horft á að hvíla líffærin og gefa þeim tækifæri á að hreinsa út og fara í smá naflaskoðun og núllstilla sig. Núllstilling auðveldar að ná tökum á breyttum lífsstíl og að gera drastískar breytingar á mataræði.