Guðmundur Felix Grétarsson er kominn á fætur eftir handleggjaágræðslu og tók léttan dans til þess að fagna afrekinu. Guðmundur Felix birti myndskeið af áfanganum á Facebook-síðu sinni í gær.

Guðmundur Felix Grétarsson er kominn á fætur eftir handleggjaágræðslu og tók léttan dans til þess að fagna afrekinu. Guðmundur Felix birti myndskeið af áfanganum á Facebook-síðu sinni í gær. Í myndskeiðinu má sjá hann hæstánægðan með að komast fram úr rúminu með góðri hjálp heilbrigðisstarfsmanna, og með nýju handleggina kirfilega reyrða upp við líkamann.

Áður en Guðmundur Felix stóð upp í gær hafði hann verið rúmliggjandi síðan hann undirgekkst aðgerðina 14. janúar síðastliðinn.