Erla Björk Þorgeirsdóttir
Erla Björk Þorgeirsdóttir
Eftir Erlu Björk Þorgeirsdóttur: "Það er vel þess virði að kynna sér náms- og starfsmöguleika á rafmagnssviði."

Það verður sífellt erfiðara fyrir ungt fólk að velja sér starfsvettvang. Sumir hafa ástríðu fyrir einhverju frá unga aldri eins og sjá má í áratuga gömlum klippum í auglýsingu sem flestir hafa séð. Þar er Hermann Gunnarsson heitinn að spyrja börn hvað þau ætli að verða þegar þau eru orðin stór. Þessi börn eru í dag fullorðið fólk sem er landsþekkt fyrir afrek sín, en það eru ekki allir svo gæfusamir að sjá fyrir sér að keppa fyrir hönd Íslands á stórmótum og framkvæma það síðan með afburðaárangri.

Það er úr ákaflega mörgum leiðum að velja í lífinu í dag, þeir sem ætluðu að ganga menntaveginn fyrir hundrað árum gátu ekki valið um mikið meira en iðngreinar, guðfræði, lögfræði, læknisfræði og hjúkrun. Fyrstu verkfræðingarnir eins og Sigurður Thoroddsen voru að ljúka námi á þriðja áratug síðustu aldar. Síðan þá hefur ótrúlega margt breyst í samfélaginu okkar og við stukkum úr bændasamfélagi inn í tækniöldina á ógnarhraða.

Samfélagið okkar er orðið mjög flókið og hver tæknibyltingin tekur við af annarri. Fyrir hundrað árum voru bílar, flugvélar og útvarp nýjung. Nú hlustum við á útvarp í snjalltækjum, flugleiðsögumenn eru löngu orðnir óþarfir og flugstjórarnir fylgjast mikið með flugvélunum á sjálfstýringu. Sjálfvirkni og snjallar lausnir verða sífellt meira áberandi. Bílarnir okkar eru óðum að verða sjálfkeyrandi og svona mætti lengi telja. Allar þessar nýjungar byggjast á rafboðum og stýringum, sem byggjast á rafmagni.

Þekking á þessu víðtæka sviði rafmagnsfræða er verðmæt og gæti orðið útflutningsvara og tekjulind í margumræddri nauðsynlegri viðspyrnu fyrir hagkerfið okkar. Við erum nánast öll með snjalltæki í höndunum, bæði ungir og aldnir. Þessi tæki ganga fyrir rafmagni, eiga samskipti sem byggjast á merkjafræði sem er fag innan rafmagnsverkfræðinnar. Við þurfum ljós, það þarf að framleiða rafmagn, flytja það dreifa því. Leggja raflagnir í hús, endurnýja fjarskiptakerfi. Forrita stýribúnað og hugbúnað margvíslegan sem tengist rafdrifnum tækjum. Rafvirkjun, rafeindavirkjun, rafmagnstæknifræði og rafmagnsverkfræði eru allt saman fög sem fjalla um rafmagn.

Innan rafmagnsfræðinnar er úr margvíslegum störfum að velja, það er líka hægt að byrja á því að verða rafvirki og bæta síðan við sig tæknifræði og svo verkfræði. Snjallvæðingin er nýjasta tæknibyltingin sem við erum enn að átta okkur á hvernig við munum nýta. Við sjáum að hægt er að lágmarka kostnað við sorphirðu með snjöllum sorptunnum, sem láta vita þegar þær eru að fyllast. Við getum fengið stýringar fyrir ljós og hita á heimilin okkar þannig að við séum með lægri hita á nóttunni þegar við sofum eða þegar við erum ekki heima. Þessar stýringar geta svo hækkað hitann aftur áður en við komum heim úr vinnu eða vöknum.

Rafmagnstækni er sívaxandi þáttur í heilbrigðisþjónustu og má þar nefna segulómtæki, aðgerðaþjarka og margvísleg fleiri tæki. Fjölbreytileiki starfa innan rafmagnsgeirans er mikill og verkefnin verða sífellt fleiri og margvíslegri með aukinni sjálfvirkni og margvíslegum snjöllum lausnum.

Það er vel þess virði fyrir uppalendur og alla þá sem eru að velta því fyrir sér í dag hvaða menntun þeir eiga að velja að skoða námsleiðir í rafmagnsfræðum. Það er úr mjög mörgu spennandi að velja á þessu sviði og því má með sanni segja að það sé stuð í rafmagninu og þá sérstaklega í háspennunni.

Höfundur er rafmagnsverkfræðingur og framkvæmdastjóri verkfræðistofunnar Afls og orku. erlabj@vao.is