Nokkurrar bjartsýni gætti meðal útgerðarmanna sem rætt var við í gær um að bætt yrði við loðnukvótann. Meðal annars í ljósi þess að rannsóknas kip voru í loðnu við hafísröndina úti af Vestfjörðum þegar þau urðu frá að hverfa.

Nokkurrar bjartsýni gætti meðal útgerðarmanna sem rætt var við í gær um að bætt yrði við loðnukvótann. Meðal annars í ljósi þess að rannsóknas kip voru í loðnu við hafísröndina úti af Vestfjörðum þegar þau urðu frá að hverfa. Einnig með það í huga að ungloðnumæling haustið 2019 á árganginum sem á að bera uppi veiðina í vetur gaf upphafskvóta upp á 170 þúsund tonn. Sú ráðgjöf var dregin til baka í haust.

Kraftur verður í loðnumælingum í vikunni. Vonir standa til að með sjö skipum takist að ná heildarmælingu á loðnugöngum og þá að Vestfjarðasvæðinu og Grænlandssundi meðtöldu. 4