Hilmar Oddsson
Hilmar Oddsson
„Ég er búinn að stefna leynt og ljóst að því að gera þessa mynd í 25 ár þannig að þetta er einhver lengsta meðganga kvikmyndar sem um getur,“ segir Hilmar Oddsson kvikmyndaleikstjóri.

„Ég er búinn að stefna leynt og ljóst að því að gera þessa mynd í 25 ár þannig að þetta er einhver lengsta meðganga kvikmyndar sem um getur,“ segir Hilmar Oddsson kvikmyndaleikstjóri. Hilmar hefur fengið vilyrði fyrir 110 milljóna framleiðslustyrk frá Kvikmyndamiðstöð Íslands til að gera kvikmyndina Á ferð með mömmu og tökur hefjast í haust. Með aðalhlutverk fara Þröstur Leó Gunnarsson og Kristbjörg Kjeld auk þess sem Hera Hilmarsdóttir, dóttir leikstjórans, fer með stórt hlutverk. 6