Lófi Búdda Úr hinni gríðarlega undarlegu Buddha's Palm sem er ein þeirra sem Sigtryggur hefur dálæti á.
Lófi Búdda Úr hinni gríðarlega undarlegu Buddha's Palm sem er ein þeirra sem Sigtryggur hefur dálæti á.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Myndlistar- og tónlistarmaðurinn Sigtryggur Berg Sigmarsson, sem býr og starfar í Hannover í Þýskalandi, er mikill áhugamaður um kvikmyndir og þá sérstaklega gríðarlega undarlegar kvikmyndir.

Helgi Snær Sigurðsson

helgisnaer@mbl.is

Myndlistar- og tónlistarmaðurinn Sigtryggur Berg Sigmarsson, sem býr og starfar í Hannover í Þýskalandi, er mikill áhugamaður um kvikmyndir og þá sérstaklega gríðarlega undarlegar kvikmyndir. Sigtryggur heldur úti facebooksíðu sem helguð er slíkum myndum sem og költmyndum svonefndum, Költ og gríðarlega undarlegar kvikmyndir . Eru fylgjendur þeirrar síðu um 2.300 talsins enda af nógu að taka þegar kemur að gríðarlega undarlegum kvikmyndum í kvikmyndasögunni.

Sigtryggur áréttar strax í upphafi spjalls við blaðamann að heiti síðunnar sé ekki frá honum komið. „Heitið og allt þetta kemur ekkert frá mér, það var annar náungi sem startaði þessu öllu en hann bað mig að taka við, hann hafði ekki tíma í þetta. Það eru einhver ár síðan en titillinn kemur frá Incredibly Strange Film s sem var hálfgerð biblía og opnaði mjög margar dyr fyrir mjög mörgum. Þetta var Research-bók sem kom út, minnir mig, '86 eða '7,“ segir Sigtryggur en bókin kom einmitt út árið 1986. „Það var verið að selja Research-bækurnar í Bóksölu stúdenta og þessar bækur opnuðu mjög mikið fyrir mörgum, þetta er var svona „holy grail“,“ bætir Sigtryggur við en áhugasömum má benda á vefsíðu téðrar útgáfu, researchpubs.com.

Frábær og furðuleg

Sigtryggur segist muna eftir því, þegar hann var á barnsaldri, að Fellini hafi þótt furðulegi leikstjórinn en þó mikils metinn. Kvikmynd hans hafi mörgum þótt besta kvikmynd allra tíma án þess þó að átta sig almennilega á því um hvað hún væri. Sigtryggur hlær að þessu enda kvikmynd Fellinis flokkuð sem súrrealískt gamandrama. „Ef ég er að horfa á kvikmynd og ekki alveg búinn að ná utan um myndina eftir korter og fæ þessar spurningar upp í kollinn: fyrir hvern er þessi mynd, af hverju var þessi mynd gerð, hver setti peninga í þessa mynd [...] ef svona spurningar koma upp á ég von á mjög góðu,“ segir Sigtryggur sposkur um áhuga sinn á gríðarlega undarlegum kvikmyndum.

–Er það þá sælutilfinning?

„Algjörlega,“ svarar Sigtryggur að bragði og segist mikið hafa farið í bíó sem barn og séð alls konar bíómyndir, misjafnar að gæðum. „Ég man að ég var orðinn svo þreyttur á því að yfirleitt eftir korter eða tuttugu mínútur vissi maður nokkurn veginn hvernig myndin myndi fara, þetta var rútína og truflaði mig mjög mikið. Ég man ekkert alveg hver var allra fyrsta furðulega myndin sem ég sá en ég man eftir því að ég sá Ken Russell-myndir í æsku, áður en ég kynntist myndum Davids Lynch. Ég sá Neil Jordan líka og Peter Greenaway og þannig dót,“ segir Sigtryggur. Hann hafi hangið með vinum sínum á vídeóleigu í hverfinu og stelpurnar sem voru að afgreiða oft orðið svo þreyttar á þeim að þær hafi lánað þeim spólu til að losna við þá. Sagt þeim að fara heim að horfa á myndina og koma svo aftur og skila henni. „Við reyndum alltaf að finna eitthvert stöff til að taka með heim áður en foreldrarnir kæmu,“ rifjar Sigtryggur upp og að þeir vinirnir hafi bæði horft á hryllingsmyndir og furðumyndir. „Þær gerðu mikið fyrir mann þegar maður var ungur,“ segir hann.

Ástríðufullur Franco

–Það má flokka þessar myndir eftir því hvort þær eru „artí“ og skrítnar eða lélegar og skrítnar, er það ekki? Það eru nokkrir flokkar til af stórkostlega undarlegum myndum, er það ekki?

„Jú... ég fíla alveg myndir sem eru „full on“ furðulegar en finnst alltaf best þegar það er eitthvað sem heldur manni gangandi, það er list að geta náð þeirri stemningu,“ svarar Sigtryggur. Auðvelt sé að gera kvikmynd sem sé bara undarleg og ekkert umfram það en erfiðara að hafa sögu með sem dragi áhorfandann inn í myndina.

Sigtryggur bendir á kvikmyndir spænska leikstjórans Jesús „Jess“ Francos sem dæmi um undarlegar myndir gerðar af augljósri og mikilli ástríðu. „Hann gerði kvikmyndir af því hann varð að gera það, alveg eins og Charles Bukowski varð að skrifa,“ bendir Sigtryggur á. „Hann þurfti að vera með þrjár eða fjórar myndir í gangi, var kannski að skrifa handrit að næstu mynd á meðan hann var að gera mynd og var kannski ekki búinn með handritið að henni,“ segir Sigtryggur kiminn. Franco hafi líklega gert allar gerðir kvikmynda; gaman, hrylling, drama, í raun hvað sem er.

Sigtryggur bendir á að hefði Franco náð að einbeita sér að einni mynd hefði hann mögulega gert meistaraverk. „Í mínum augum var hann algjör snillingur þessi gaur og sjarminn við þessar myndir hans er að þær eru svo „random“, eins og það sé eitthvert mjög undarlegt „touch“ í gangi.“

Nokkrar undarlegar

Sigtryggur segist stundum taka sér hlé frá furðulegum myndum og horfa á Hollywood-myndir. „En þá er ég strax kominn í símann og farinn að tékka á tölvupósti, Facebook og svona. Ég er ekki að fá mitt,“ útskýrir hann. Hann geti farið á klósettið í miðri Hollywood-mynd án þess að missa af neinu mikilvægu.

Sigtryggur er spurður að því hvort hann eigi sér uppáhaldsfurðumynd. Hann segist hafa skrifað nokkrar á blað fyrir samtalið (sem heyra má í heild sem hlaðvarpsþátt á mbl.is á slóðinni www.mbl.is/folk/frettir/2021/01/21/dasamlega_undarlegar/) og nefnir The World Greatest Sinner eftir Timothy Carey frá árinu 1962, To Kill a Clown eftir George Bloomfield frá 1972 , Bloody New Year eftir Norman J. Warren frá 1987, Buddha's Palm og The Boxers Omen sem framleiddar eru af Shaw-bræðrum og Scream for Help eftir Michael Winner frá 1984.

Blaðamaður kannast ekki við neina þessara mynda og nefnir Sigtryggur þá eina sem margir þekkja, Zardoz eftir John Boorman frá árinu 1974, þar sem Sean Connery heitinn er með sítt fléttað hár og klæddur háum stígvélum og stórfurðulegri rauðri brók með rauð axlabönd (sjá mynd hér til hliðar). Til gamans má geta að Zardoz er með meðaleinkunnina 46 á Metacritic sem er býsna gott fyrir gríðarlega undarlega kvikmynd. Eða vont, eftir því hvernig á það er litið.

En hvar er best að leita að gríðarlega undarlegum kvikmyndum? Sigtryggur nefnir Amazon Prime-streymisveituna, þar megi finna margar góðar myndir í þessum flokki. „Svo er það YouTube, það er hafsjór af góðu stöffi á YouTube,“ bendir Sigtryggur á. Þar megi finna myndir í fullri lengd og önnur streymisveita, Mubi, sé líka nokkuð gjöful. Síðast en ekki síst er það svo fésbókarsíðan fyrrnefnda því á henni má finna ábendingar um furðumyndir og umræður um slíkar myndir.