Evert Víglundsson, einn af eigendum Cross Fit Reykjavík, mætti í morgunþáttinn Ísland vaknar og ræddi þar við þau Ásgeir Pál, Kristínu Sif og Jón Axel um hreyfingu og heilsu.
Evert Víglundsson, einn af eigendum Cross Fit Reykjavík, mætti í morgunþáttinn Ísland vaknar og ræddi þar við þau Ásgeir Pál, Kristínu Sif og Jón Axel um hreyfingu og heilsu. Hann segir morgnana hjá sér hafa verið rólega megnið af síðastliðnu ári enda hafi líkamsræktarstöðvar verið lokaðar vegna Covid. Nú sé hins vegar búið að opna aftur og stemningin góð. Evert spáir mikið í heilsuna og leggur það í vana sinn að skoða allt það nýjasta sem talið er gott fyrir fólk. Hann segir neföndun nýjustu tísku í heilsuheiminum í dag. Viðtalið við Evert má nálgast í heild sinni á K100.is.