Heiða Ragney Viðarsdóttir
Heiða Ragney Viðarsdóttir
Knattspyrnukonan Heiða Ragney Viðarsdóttir er gengin til liðs við Stjörnuna í úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildinni. Heiða Ragney er 25 ára gömul miðjukona sem er uppalin hjá Þór/KA á Akureyri.
Knattspyrnukonan Heiða Ragney Viðarsdóttir er gengin til liðs við Stjörnuna í úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildinni. Heiða Ragney er 25 ára gömul miðjukona sem er uppalin hjá Þór/KA á Akureyri. Hún á að baki 77 leiki í efstu deild fyrir félagið og þá á hún að baki fimm landsleiki fyrir yngri landslið Íslands. Heiða Ragney lék alla sextán leiki Þórs/KA í úrvalsdeildinni, Pepsi Max-deildinni, á síðustu leiktíð og skoraði í þeim eitt mark þegar liðið hafnaði í sjöunda sæti deildarinnar eftir að keppni var hætt í lok október vegna kórónuveirufaraldursins.