Sáttur José Mourinho, stjóri Tottenham, var ánægður í leikslok.
Sáttur José Mourinho, stjóri Tottenham, var ánægður í leikslok. — AFP
Tanguy Ndombele skoraði tvívegis fyrir Tottenham þegar liðið vann 4:1-útisigur gegn B-deildarliði Wycombe Wanderers í 4. umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu í gær. Fred Onyedinma kom Wycombe Wanderers yfir á 25.
Tanguy Ndombele skoraði tvívegis fyrir Tottenham þegar liðið vann 4:1-útisigur gegn B-deildarliði Wycombe Wanderers í 4. umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu í gær. Fred Onyedinma kom Wycombe Wanderers yfir á 25. mínútu en Gareth Bale jafnaði metin fyrir Tottenham undir lok fyrri hálfleiks áður en þeir Harry Winks og Ndombele bættu við þremur mörkum til viðbótar á lokamínútunum og þar við sat. Tottenham mætir Everton á Goodison Park í sextán liða úrslitum keppninnar.