Í síðustu viku samþykkti mannanafnanefnd aðra útgáfu af nafni en það sem lagt hafði verið fyrir nefndina. Þannig var eiginnafninu Alaia hafnað, en þess í stað var ákveðið að úrskurða nafnmyndina Alaía í mannanafnaskrá.

Í síðustu viku samþykkti mannanafnanefnd aðra útgáfu af nafni en það sem lagt hafði verið fyrir nefndina. Þannig var eiginnafninu Alaia hafnað, en þess í stað var ákveðið að úrskurða nafnmyndina Alaía í mannanafnaskrá. Að sögn Sigurðar Konráðssonar, prófessors og nefndarmanns í mannanafnanend, heyrir það til undantekninga að nefndin leggi til aðra framsetningu á nafni sem ekki hlýtur brautargengi. „Það er mjög óalgengt en ef það er eitthvað alveg náskylt sem samræmist lögum þá kannski bendum við á það. Það gerist ekki oft enda er það í sjálfu sér óþarfi að gera það. Hins vegar getur það verið ákveðið vinnuhagræði í þeim skilning að þá þarf viðkomandi ekki endilega að byrja aftur frá byrjun,“ segir Sigurður.

Eins og áður hefur verið greint frá hefur Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra lagt fram frumvarp á Alþingi sem snýr að auknu frelsi við nafnaval. Hluti af umræddu frelsi er að afnema hámark á fjölda nafna auk þess að leggja niður mannanafnanefnd. Sjálfur segist Sigurður ekki hrifinn af ráðstöfuninni. „Þetta verður erfiðara og dýrara í framkvæmd. Í stað þess að hafa áhugamannanefnd þá þarf að standa fyrir sérstakri deild eða manni í fullu starfi.“

Í nýjustu úrskurðum mannanafnanefndar má sjá margar skondnar tillögur að nöfnum, þar á meðal Aquamann, Lilith og Brettingz. Aðspurður segir Sigurður að ákveðinn galli sé á reglunum hvað sérstök nöfn varðar. „Það er stór galli á reglunum að öll nöfn sem samþykkt eru fara inn á mannanafnaskrá. Eftir það getur hver sem er notað þau. Með öðrum orðum skiptir engu hvort sá sem er að breyta um nafn sé fertugur karl á fylleríi eða ungbarn. Það væri mikill fengur í því að fá sérstaka skrá fyrir þá sem vilja taka upp sérviskunöfn.“