Nokkur tilboð hafa borist í Landsbankahúsið við Pólgötu á Ísafirði sem er til sölu. Eins og fram kom í Morgunblaðinu á dögunum er ætlunin að flytja starfsemi útibús bankans í byggingu skammt frá núverandi stað, það er Hafnarstræti 19 þar sem Sparisjóður Vestfirðinga var áður. Starfsemin verður þó áfram í hjarta bæjarins.
Hús Landsbankas á Ísafirði er á fjórum hæðum; kjallari, tvær hæðir og ris. Grunnflötur er um 220 m
„Nokkur tilboð hafa borist í hús Landsbankans við Pólgötu á Ísafirði en engu þeirra hefur verið tekið af hálfu bankans,“ segir Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi Landsbankans.