Halldór Gunnarsson
Halldór Gunnarsson
Eftir Halldór Gunnarsson: "Löggjöf, sem neyðir fólk vegna fátæktar til skilnaðar eða til að fara fram hjá lögum við þær eða aðrar aðstæður, verður að breyta."

Allt frá árinu 1969 var aðskilnaður milli almannatrygginga og lífeyriskerfisins. Þetta breyttist með hruninu og við tóku allsherjar skerðingar frá 2009 til 2013. Eftir það var létt nokkuð á skerðingum, en þær síðan teknar upp að nýju 1. mars 2017. Reglurnar 2009 voru þær að aðeins mátti vinna fyrir kr. 25.000 á mánuði án skerðinga. Sem sagt nánast bannað að vinna. Þessi mörk voru hækkuð 2017 í kr. 100.000 og þótti mikil bót eða hvað? Ef fólk reyndi að vinna sér til bjargar umfram þessa upphæð myndu greiðslur almannatrygginga skerða umframgreiðslu um 45%, og með frádregnum tekjuskatti væri eftir um kr. 20.000 af hverjum kr. 100.000. Hvað myndu menn segja ef lagður væri allt að 81,9% skattur á launatekjur yfir eina milljón á mánuði?

Skerðingarnar hafa staðið óbreyttar síðan, þótt allar aðrar greiðslur í samfélaginu, nema greiðslur almannatrygginga, hafi árlega tekið mið af verðlagi og launaþróun.

Neyðarúrræði hjóna eða sambúðarfólks

Hjón eða sambúðarfólk, sem býr við þær aðstæður að hafa aðeins um 380 til 420 þúsund á mánuði samanlagt, eru líklega um fjögur þúsund talsins. Þrátt fyrir þessa stöðu hafa þau greitt í lífeyrissjóð, bæði eða annað, meirihluta starfsævi sinnar. Hvaða neyðarúrræði geta þau átt, til að lifa af með fjárhagslegri reisn? Líklega aðeins það að skilja og leigja síðan öðrum aðilanum með leynd aðstöðu í íbúð sinni, sem þau eiga eða leigja í dag. Þannig bættu þau fjárhag sinn fyrir utan skatt um 134.450 krónur á mánuði. Þetta hlyti að teljast neyðarréttur þessa fólks, sem býr við ofurskerðingar á greiðslum almannatrygginga gagnvart vinnu- og lífeyrissjóðstekjum. Giftast síðan á ný þegar leiðrétting hefur náðst fram.

Neyðarúræði þess einstaklings sem býr einn

Þessi einstaklingur nýtur greiðslu frá TR að upphæð kr. 333.258 á mánuði. Vilji hann hjálpa afkomanda, frænda eða frænku með því að fá að búa á heimilinu eða að fá hjálp sjálfur með því að fá afkomanda til að búa hjá sér er hann skertur um kr. 67.225 á mánuði, og ef TR kemst ekki að því strax, þá er skerðingin afturvirk til greiðslu. Neyðarrétturinn felst í því að skrá ekki þennan einstakling á heimilinu og reyna að láta sem minnst á honum bera.

Neyðarúræði fólks sem flytur á dvalar- eða hjúkrunarheimili

Aðra nauðvörn getur eldra fólk átt, sem flyst á dvalarheimili eða hjúkrunarheimili. Grunngreiðsla TR fellur niður, en viðkomandi fær kr. 79.859 á mánuði til nauðsynlegra útgjalda s.s. fyrir bifreiðakostnaði, fatnaði, ólyfseðilsskyldum lyfjum, heilsuvörum, hársnyrtingu, fótsnyrtingu, ferðalögum, snyrtivörum, gleraugum, heyrnartækjum, innbústryggingu, efni í föndurvörur, sælgæti, tóbaksvörum, tækifærisgjöfum, jólagjöfum o.fl. - þar með endanlega að hætta að reka eða leigja húsnæði. Allar aðrar tekjur viðkomandi einstaklings, s.s. lífeyrissjóðsgreiðslur og fjármagnstekjur, eru þá teknar upp í þennan dvalarkostnað, allt að kr. 454.542 á mánuði. Við þessar aðstæður væri eðlilegt neyðarúrræði, til að geta átt fyrir eðlilegum útgjöldum, að taka út úr banka sparnað sinn og geyma annars staðar.

Breytum skerðingarlöggjöf og fjármálaeftirliti TR

Löggjöf, sem neyðir fólk vegna fátæktar til skilnaðar eða til að fara fram hjá lögum við þær eða aðrar aðstæður, verður að breyta. Lög og reglugerðir, sem heimila TR að hafa eftirlit með öllum fjármálahreyfingum viðkomandi og hvar viðkomandi býr og með hverjum, jaðra við njósnir, sem verður að breyta.

Höfundur er form. kjararáðs Félags eldri borgara í Rangárvallasýslu.