60 ára Hallur er borinn og barnfæddur Akureyringur. Hann ólst upp í Skipagötu 4 og býr í Teigahverfinu. Hallur er offsetprentari að mennt og er framleiðslustjóri hjá Ásprenti. Maki : Laufey Petrea Magnúsdóttir, f. 1962, uppeldis- og menntunarfræðingur.
60 ára
Hallur er borinn og barnfæddur Akureyringur. Hann ólst upp í Skipagötu 4 og býr í Teigahverfinu. Hallur er offsetprentari að mennt og er framleiðslustjóri hjá Ásprenti.
Maki : Laufey Petrea Magnúsdóttir, f. 1962, uppeldis- og menntunarfræðingur.
Börn : Ása Sigríður, f. 1982, og Arnór Egill, f. 1989. Barnabörnin eru Tristan Gauti og Fanney Petrea Arnórsbörn.
Foreldrar : Brynja Heiðdal, f. 1942, d. 2016, og Stefán A. Jónasson, f. 1938, d. 2016. Þau ráku gistiheimilið Ás í Skipagötu 4.