Loka átti á rafmagn til rækjuverksmiðjunnar Kampa á Ísafirði eftir að fyrirtækið hætti að greiða af skuld sinni við Orkubú Vestfjarða. Elías Jónatansson orkubússtjóri staðfestir þetta í samtali við Morgunblaðið.

Loka átti á rafmagn til rækjuverksmiðjunnar Kampa á Ísafirði eftir að fyrirtækið hætti að greiða af skuld sinni við Orkubú Vestfjarða. Elías Jónatansson orkubússtjóri staðfestir þetta í samtali við Morgunblaðið. Samkvæmt heimildum blaðsins hljóp skuld Kampa á tugum milljóna króna. Aðspurður segist Elías ekki vilja tjá sig um upphæð skulda tiltekinna viðskiptavina.

Eins og Morgunblaðið greindi frá fyrr í vikunni fékk rækjuvinnslan greiðslustöðvun á dögunum eftir að í ljós kom að staða félagsins var allt önnur en fram hafði komið í ársreikningi. Þannig var fjárhagsstaðan miklu verri, en samkvæmt heimildum blaðsins skeikaði stöðunni um hundruð milljóna króna. Hefur stjórnarformaður Kampa, Jón Guðbjartsson, sagt að einum stjórnanda sé þar um að kenna.

Elías segir að skuld Kampa gagnvart Orkubúi Vestfjarða sé að hluta til gömul. Hún hafði lækkað á síðasta ári, eða þar til á seinni hluta ársins þegar síga fór á ógæfuhliðina. „Þá hætta að berast reglulegar greiðslur, en fram að því höfðu plön félagsins verið trúverðug. Þetta var komið þangað að við ætluðum að loka á rafmagnið til þeirra.“

Öðrum af tveimur verklegum stjórnendum Kampa var vísað úr stjórn félagsins í gær. Honum hafði verið sagt upp störfum fyrir jól, en hann er sakaður um að hafa gefið ranga mynd af fjárhagsstöðu fyrirtækisins.