Frískur Rashford, t.h., fagnar marki sínu gegn Liverpool.
Frískur Rashford, t.h., fagnar marki sínu gegn Liverpool. — AFP
Marcus Rashford, sóknarmaður Manchester United, er klár í slaginn gegn Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en óttast var að hann yrði frá vegna meiðsla eftir að hann fór af velli gegn Liverpool í 4. umferð bikarkeppninnar á sunnudaginn.
Marcus Rashford, sóknarmaður Manchester United, er klár í slaginn gegn Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en óttast var að hann yrði frá vegna meiðsla eftir að hann fór af velli gegn Liverpool í 4. umferð bikarkeppninnar á sunnudaginn. „Marcus er tilbúinn. Hann æfði í morgun [gær], hann fékk einhvern slink á hnéð en það virðist vera í lagi,“ sagði Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóri United, á vef félagsins í gær og sagði að myndataka hefði leitt í ljós að ekkert alvarlegt hefði átt sér stað.