Breytingar Jörundur Áki Sveinsson er tekinn við U17 ára liði karla.
Breytingar Jörundur Áki Sveinsson er tekinn við U17 ára liði karla. — Morgunblaðið/Eggert
Garðbæingurinn Jörundur Áki Sveinsson er tekinn við þjálfun U17 ára landsliðs karla í knattspyrnu samkvæmt frétt á vef KSÍ. Segja má að keðjuverkun hafi farið í gang innan KSÍ þegar Arnar Þór Viðarsson tók við A-landsliði karla.

Hætti hann þá sem þjálfari U21 árs liðs karla. Við starfi hans þar tók Davíð Snorri Jónsson sem hætti þá sem þjálfari U17 ára liðsins. Jörundur Áki mun áfram þjálfa sömu aldursflokka hjá kvennalandsliðunum og með honum verður Þórður Þórðarson.