Tony Iommi er iðinn við kolann.
Tony Iommi er iðinn við kolann. — AFP
Nei Tony Iommi hefur eytt orðrómi þess efnis að Rob Halford, söngvari Judas Priest, komi til með að syngja á væntanlegri plötu bandsins hans, Heaven & Hell, og leysa þar með Ronnie James Dio af hólmi.
Nei Tony Iommi hefur eytt orðrómi þess efnis að Rob Halford, söngvari Judas Priest, komi til með að syngja á væntanlegri plötu bandsins hans, Heaven & Hell, og leysa þar með Ronnie James Dio af hólmi. Vinny Appice, trymbill H&H, hafði áður gefið þessum möguleika undir fótinn. „Það mun ekki gerast núna,“ sagði Iommi í samtali við Loudwire. Fram kom að hann sé þó að semja nýtt efni en ekki liggur fyrir hvort það verði gefið út undir merkjum H&H.