Danmörk Martin Rauschenberg verður áfram hjá HK-ingum.
Danmörk Martin Rauschenberg verður áfram hjá HK-ingum. — Ljósmynd/HK
Danski knattspyrnumaðurinn Martin Rauschenberg verður áfram í röðum HK en í gær tilkynnti félagið að lánssamningur við Stjörnuna varðandi hann hefði verið framlengdur út komandi keppnistímabil. Rauschenberg er 29 ára gamall varnarmaður.
Danski knattspyrnumaðurinn Martin Rauschenberg verður áfram í röðum HK en í gær tilkynnti félagið að lánssamningur við Stjörnuna varðandi hann hefði verið framlengdur út komandi keppnistímabil. Rauschenberg er 29 ára gamall varnarmaður. Hann varð Íslandsmeistari með Stjörnunni árið 2014, sem var annað ár hans með Garðabæjarliðinu. Samtals hefur Rauschenberg leikið 61 leik í úrvalsdeildinni hér á landi og skorað tvö mörk. Hann lék átta leiki með HK síðari hluta síðasta sumars.