40 ára Hugi ólst upp í Vesturbæ Reykjavíkur og á Sauðárkróki en býr í Hafnarfirði. Hann er stúdent frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og er sjálfstætt starfandi framleiðandi. Maki : Ástrós Signýjardóttir, f.
40 ára Hugi ólst upp í Vesturbæ Reykjavíkur og á Sauðárkróki en býr í Hafnarfirði. Hann er stúdent frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og er sjálfstætt starfandi framleiðandi.

Maki : Ástrós Signýjardóttir, f. 1986, MA í alþjóðasamskiptum og framkvæmdastjóri hjá Norræna félaginu.

Börn : Auðunn Sölvi, f. 2011, Hanna Sóley, f. 2015, Halldór Smári, f. 2015, og Unnur Signý, f. 2020.

Foreldrar : Halldór Halldórsson, f. 1961, dómstjóri Norðurlands vestra, búsettur á Sauðárkróki, og Ólöf Margrét Þorsteinsdóttir, f. 1960, skáld, búsett í Reykjavík.