Multi-ævintýri. A-NS
Norður | |
♠4 | |
♥G107532 | |
♦10852 | |
♣102 |
Vestur | Austur |
♠K53 | ♠ÁD8762 |
♥K8 | ♥9 |
♦K973 | ♦DG6 |
♣G987 | ♣653 |
Suður | |
♠G109 | |
♥ÁD64 | |
♦Á4 | |
♣ÁKD4 |
Suður spilar 3G.
Krzysiek Kotorowicz (já, hann er pólskur) var gjafari í austur á hagstæðum hættum og opnaði á multi 2♦ – veikt með sex-spila hálit. Kevin Rosenberg í suður doblaði og Konrad Araszkiewicz (líka Pólverji) í vestur stökk hindrandi í 3♥ í merkingunni „pass or correct“, sem þýðir á íslensku að opnari eigi að passa með hjartalit en leiðrétta í 3♠ með spaðalit. Þekkt aðferð meðal fjölfræðinga. Norður (John McAllister) passaði og nú átti Kotorowicz að sýna sitt rétta andlit með því að breyta í 3♠. En hann sagði PASS og lýsti því þar með yfir að hann væri með veika tvo í HJARTA!
Rosenberg taldi punktana sína aftur og komst að sömu niðurstöðu og fyrr – þeir voru 20, sem var alltof mikið til að kæfupassa, enda lítið að hafa fyrir dánana utan hættu. Hann sagði því 3G.
Spilamennskuna tók fljótt af. Vestur kom út með hjartakóng og Rosenberg lagði upp tíu slagi.