Rosamund Pike leikur aðalhlutverkið.
Rosamund Pike leikur aðalhlutverkið. — AFP
Prettir I Care a Lot eða Mér stendur ekki á sama kallast ný kvikmynd sem frumsýnd verður á efnisveitunni Netflix 19. þessa mánaðar.
Prettir I Care a Lot eða Mér stendur ekki á sama kallast ný kvikmynd sem frumsýnd verður á efnisveitunni Netflix 19. þessa mánaðar. Rosamund Pike leikur þar samviskulausa konu sem sérhæfir sig í því að smeygja sér inn á aldraða gegnum lagakerfið – og hefur öðru fremur augastað á bankareikningum þeirra. Helling er upp úr þessu að hafa og allt leikur í lyndi þangað til hún svíkur fórnarlamb sem á vini sem kunna og veigra sér ekki við að taka fólk miðaldatökum. Myndin er skilgreind sem svört kómedía og leikstjóri er hinn enski J Blakeson. Þau verða víst ekki styttri eiginnöfnin, J.