Síung Helena Eyjólfsdóttir stígur enn á „stokk“, síðast hjá Helga Björns.
Síung Helena Eyjólfsdóttir stígur enn á „stokk“, síðast hjá Helga Björns. — Ljósmynd/Mummi Lú
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Söngkonan Helena Eyjólfsdóttir fór á kostum í sjónvarpsþættinum „Það er komin Helgi“ með Helga Björns og Reiðmönnum vindanna í Sjónvarpi Símans sl. laugardagskvöld, breytist ekkert og hefur engu gleymt. „Þetta tókst rosalega vel og skemmtilegast er að söngröddin er þarna ennþá, þó skrítið sé,“ segir dívan, sem verður áttræð eftir tæpt ár.

Steinþór Guðbjartsson

steinthor@mbl.is

Söngkonan Helena Eyjólfsdóttir fór á kostum í sjónvarpsþættinum „Það er komin Helgi“ með Helga Björns og Reiðmönnum vindanna í Sjónvarpi Símans sl. laugardagskvöld, breytist ekkert og hefur engu gleymt. „Þetta tókst rosalega vel og skemmtilegast er að söngröddin er þarna ennþá, þó skrítið sé,“ segir dívan, sem verður áttræð eftir tæpt ár.

Heilsan hefur alla tíð verið góð og Helena þakkar það góðu mataræði og nægri hreyfingu. „Ég er hraust og það er ekkert að mér, ég tek engin lyf og er dugleg að hreyfa mig, borða rétt og fer snemma að sofa á kvöldin,“ leggur hún áherslu á. „Ég fer eftir þeirri uppskrift að fara vel með mig, eitthvað sem allir þekkja og eiga að fylgja til þess að lifa betra lífi á efri árum.“

Gott atlæti

Stórholtið í Reykjavík var leikvöllur Helenu í æsku. Hún ólst þar upp með krökkum, sem sumir hverjir áttu eftir að gera það gott á söngsviðinu. „Þarna voru til dæmis Raggi Bjarna, Ómar Ragnars og Kristín Ólafs,“ rifjar hún upp. „Við bjuggum við mjög gott atlæti og þess vegna er ég enn heilsugóð,“ heldur hún áfram. „Pabbi lagði áherslu á hollan mat og sá til þess að við systurnar borðuðum alltaf rúgbrauðssneið með síld fyrir kvöldmatinn. Hún var beint upp úr tunnunni með miklu lýsisbragði, en hann sagði okkur bara að hafa meiri hráan lauk með sem og við gerðum. Síðan var hellt upp í okkur lýsi í skólanum og þetta stuðlaði að góðri heilsu og gerir enn.“

Þegar Helena var 15 ára söng hún opinberlega í fyrsta sinn. Rokktónleikarnir í Austurbæjarbíói vöktu athygli og tónninn var sleginn, dægurlagasöngkona var sprungin út og blómið brosir enn nær 65 árum síðar. Helgi Björns bað hana um að koma í beina útsendingu með Reiðmönnum vindanna, lagði fyrir hana lagalista, sem hún segist hafa verið sátt með, og þá var ekkert til fyrirstöðu, þó hún hafi ekki sungið síðan á jólatónleikum Friðriks Ómars í Hofi á Akureyri fyrir jólin 2019.

Helena segist hafa verið efins í fyrstu þar sem hún hafði ekki komið fram og sungið lengi. „En þegar ég hugsaði betur um málið komst ég að þeirri niðurstöðu að það yrði bara gaman að fá að vera með, sem það var virkilega. Ég mætti á æfingu á föstudeginum, fékk frábærar móttökur og æfingin gekk mjög vel.“

Útsendingin gekk eins og í sögu. „Þetta eru allt flottir og flinkir tónlistarmenn og það var gaman að syngja með þeim,“ áréttar Helena. Hún segir sönginn í grunninn alltaf vera eins, en mikill munur sé að syngja á tónleikum eða á balli. „Þegar maður er ungur er maður fullur af bjartsýni og öruggur með sig, en mér hefur alltaf þótt erfitt að syngja á tónleikum. Á böllum veitir fólk manni mátulega mikla athygli en á tónleikum er hljótt í salnum og fólk situr og starir á mann.“

Helena segir taugatrekkjandi að vera í beinni útsendingu sjónvarps en þeim mun skemmtilegra þegar vel tekst til og undirbúningurinn hafi ekki verið langur að þessu sinni. „Ég syng aldrei heima hjá mér en nú brá ég út af reglunni til að athuga hvort röddin væri í lagi.“

Dægurlagasöngkonan er óbókuð á næstunni og segir að það trufli sig ekki. „Þetta var mjög gaman en ég ætla ekki að fara að ota mér fram. Ef einhver hringir og spyr hugsa ég samt málið.“