Framherji Kjartan Henry Finnbogason fer líklegast aftur í KR.
Framherji Kjartan Henry Finnbogason fer líklegast aftur í KR. — AFP
KR-ingar eru vongóðir um að Kjartan Henry Finnbogason muni leika með KR ef hann flytur heim til Íslands í sumar eins og útlit er fyrir.
KR-ingar eru vongóðir um að Kjartan Henry Finnbogason muni leika með KR ef hann flytur heim til Íslands í sumar eins og útlit er fyrir. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að KR hafi átt viðræður við Kjartan og í herbúðum félagsins sé búist við því að hann muni leika með liðinu í sumar. Páll Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar KR, sagðist þó ekki geta tjáð sig um málið. Kjartan gerði á dögunum samning við Esbjerg í dönsku B-deildinni út tímabilið en Ólafur Kristjánsson er þjálfari liðsins.