Björn Bergmann Sigurðarson
Björn Bergmann Sigurðarson
Björn Bergmann Sigurðarson og samherjar hans í norska knattspyrnuliðinu Molde geta ekki leikið á heimavelli gegn Hoffenheim frá Þýskalandi í 32 liða úrslitum Evrópudeildarinnar á fimmtudaginn í næstu viku vegna norskra sóttvarnareglna.
Björn Bergmann Sigurðarson og samherjar hans í norska knattspyrnuliðinu Molde geta ekki leikið á heimavelli gegn Hoffenheim frá Þýskalandi í 32 liða úrslitum Evrópudeildarinnar á fimmtudaginn í næstu viku vegna norskra sóttvarnareglna. Molde mun leika heimaleik sinn í Villarreal á Spáni. Af sömu sökum hafa þýsku liðin RB Leipzig og Mönchengladbach þurft að flytja heimaleiki sína gegn Liverpool og Manchester City í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar til Búdapest. Þeir leikir fara fram 16. og 24. febrúar.