Þyrla pakistanska hersins flaug aðeins eina ferð um leitarsvæðið á K2 í gær í leit að John Snorra Sigurjónssyni, Muhammad Ali Sadpara og Juan Pablo Mohr, enda leyfði veður ekki frekara flug. Í tilkynningu frá fjölskyldu Johns Snorra í gær kom fram að fyndust þeir ekki á meðan bjart væri, væru mjög litlar líkur á að þeir fyndust á lífi í framhaldinu. Þremenningarnir sáust síðast á föstudagsmorguninn, þegar sá fjórði í hópnum þurfti að snúa við niður sökum bilunar í súrefnistanki.
Leitinni hefur ekki verið hætt enda þótt aðstæður til flugs geti orðið slæmar næstu daga, eins og veðurspá bendir til. Engu að síður er stefnt á að fljúga aftur á morgun ef það er hægt. Leitinni er annars haldið áfram í gegnum myndgreiningu og aðra yfirgripsmikla nútímaleitartækni.
Muhammad Ali Sadpara er eins konar þjóðhetja í Pakistan. Hann er eini Pakistaninn sem hefur klifið átta af fjórtán tindum veraldar, sem eru hærri en 8.000 metrar, og hefur hann verið títt umfjöllunarefni þarlendra fjölmiðla vegna afreka sinna á þessu sviði. Um tíma vann hann við flutninga fyrir pakistanska herinn. Telja má að tilraunir pakistanskra yfirvalda til að finna hópinn séu í takt við þá stöðu sem Sadpara hefur.
Kuldinn hefur verið sérstaklega mikill á svæðinu og gerir það aðstæður til leitar þeim mun verri. Hugað er vandlega að öryggi leitarmanna, sem leggja gríðarmikið á sig í þágu leitarinnar.
Fjölskylda Johns Snorra þakkaði íslenskum stjórnvöldum, borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins, ríkislögreglustjóra, Landhelgisgæslunni og Geimvísindastofnun fyrir „ómetanlegan stuðning og fagmennsku“ meðan á leitinni hefur staðið. „Þetta er erfiður tími fyrir okkur fjölskylduna og við óskum eftir því að fá andrými til að takast á við þessa þungbæru stöðu,“ var haft eftir Línu Móey Bjarnadóttur, eiginkonu Johns Snorra, í tilkynningu. snorrim@mbl.is