Rauðkálsuppskera var fimmfalt meiri síðastliðið sumar en árið á undan og þrefaldaðist í kínakáli. Þá jókst uppskera á spergilkáli um 61%. Þetta eru dæmi um aukningu í ræktun á káli hér innanlands á síðasta ári. Á meðan ræktun jókst minnkaði innflutningur heldur þannig að markaðshlutdeild innlendrar framleiðslu á káli jókst. Mikill meirihluti rauðkálsins sem var á diskum landsmanna um jól og áramót var ræktaður hér innanlands.
Sigrún H. Pálsdóttir, eigandi Garðyrkjustöðvar Sigrúnar á Flúðum, segir að tíðarfarið skipti mestu máli um það hvernig til tekst í ræktuninni. Rauðkálið hafi gengið vel þetta árið. 4