„Við teljum okkur vera með sönnunargögn í málinu þótt þau séu missterk,“ sagði Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann sagði húsleitum lokið að sinni og að lögregla teldi sig vera með alla þá sem komu að Rauðagerðismálinu í haldi ef miðað væri við þau sönnunargögn sem lögregla hefur undir höndum. Í því máli var Albani skotinn til bana á heimili sínu fyrr í mánuðinum.
Næstu dagar munu að mestu fara í yfirheyrslur og úrvinnslu gagna. Margeir sagði að lögregla fengi betri mynd á málið með hverjum deginum. Ekki síst sé það með skoðun símagagna. Sú vinna krefst nokkurrar vinnu af starfsfólki embættisins og er tímafrek.
Spurður hvers vegna svo margir væru í haldi sagði Margeir að verið væri að setja saman hver hlutur hvers og eins er í málinu. „Við erum enn að kanna hvort þetta séu einstaklingar, fámennur hópur eða skipulagðir hópar sem hafa átt í einhverjum deilum,“ sagði Margeir. vidar@mbl.is