Umskipti eru að verða á heimsmarkaði fyrir minkaskinn eftir nokkur erfið ár. Á netuppboði hjá danska uppboðshúsinu sem nú stendur yfir hefur verið mikil eftirspurn og verðið hækkað um 50-100%.

Umskipti eru að verða á heimsmarkaði fyrir minkaskinn eftir nokkur erfið ár. Á netuppboði hjá danska uppboðshúsinu sem nú stendur yfir hefur verið mikil eftirspurn og verðið hækkað um 50-100%. Formaður Sambands íslenskra loðdýrabænda segir að verðið á sumum tegundum nálgist framleiðslukostnaðarverð.

Uppboðið er það fyrsta hjá Kopenhagen Fur á þessu sölutímabili. Það átti að vera með fólki í sal en af því gat ekki orðið vegna ferðatakmarkana. Vegna mikillar eftirspurnar frá mörkuðum var ákveðið að hafa netuppboð á helstu tegundum en eingöngu stórum skinnum af fyrsta flokks gæðum.

Allt selst sem boðið er upp

Þótt uppboðinu sé ekki lokið er ljóst að markaðurinn hefur tekið við sér eftir nokkurra ára lægð vegna offramleiðslu og ládeyðu í sölu vegna kórónuveirufaraldurs. Nánast öll skinn sem boðin hafa verið upp til þessa hafa selst og verðið hefur hækkað mikið, eða frá rúmlega 50 og upp í tæp 100%.

Ljóst er að helstu markaðir í Asíu eru að mestu lausir við veiruna og neytendur vilja kaupa skinn. Skinnakaupmenn eru að búa sig undir að mæta eftirspurninni. Þá hafa óvenjuhörð vetrarveður, til dæmis í Bandaríkjunum, aukið eftirspurn eftir hlýjum fatnaði. Þeir minkabændur sem enn halda velli hér á landi selja skinn sín í Kaupmannahöfn. Einar Eðvald Einarsson, formaður minkabænda, segir að nokkur þúsund skinn frá Íslandi séu á uppboðinu en fleiri verði boðin upp í apríl og júní. Hann kveðst ánægður með uppboðið það sem af er. „Ef þessi hækkun gengur út yfir alla liti og undirflokka sem eftir er að bjóða upp, þá verðum við nálægt framleiðslukostnaðarverði,“ segir Einar. helgi@mbl.is