Mosfellingurinn Elvar Ásgeirsson er genginn til liðs við Nancy sem leikur í næstefstu deild í franska handknattleiknum. Félagið tilkynnti um félagaskiptin í gær en fyrir nokkru var þessi möguleiki til umfjöllunar í fjölmiðlum.
Mosfellingurinn Elvar Ásgeirsson er genginn til liðs við Nancy sem leikur í næstefstu deild í franska handknattleiknum.
Félagið tilkynnti um félagaskiptin í gær en fyrir nokkru var þessi möguleiki til umfjöllunar í fjölmiðlum. Elvar fékk sig lausan frá þýska liðinu Stuttgart og verður því löglegur með Nancy á næstunni, sem er í fjórða sæti af fjórtán liðum í B-deildinni.
Elvar hélt til Þýskalands sumarið 2019 eftir að hafa leikið með Aftureldingu hér heima.