Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur(HER) telur talsverðar líkur á því að fyrirhuguð stækkun og landfylling í Sundahöfn valdi neikvæðum áhrifum á samfélagið, bæði hvað varðar sjónræna þætti og vegna hávaðamengunar.
Þetta kemur fram í umsögn heilbrigðiseftirlitsins til Skipulagsstofnunar vegna matsáætlunar fyrir þróun Sundahafnar. Jafnframt bendir eftirlitið á að skoða þurfi ítarlega möguleg áhrif á lífríkið.
Eins bendir HER á þann valkost að kanna aðra staðsetningu fyrir vöruhöfn í nágrenni borgarinnar, þar sem minni líkur eru á ónæði. Þessu hafna fulltrúar meirihlutaflokkanna í umhverfis- og heilbrigðisráði Reykjavíkur.
HER bendir á í umsögn sinni að við tilfærslu hafnarbakka breytist sú skermun sem núverandi aðstæður veiti nærliggjandi íbúðabyggð. Þegar fyllt verði upp í núverandi hafnarstæði færist meginstarfsemin utar, sem opni fyrir að hljóð berist frekar í nærliggjandi hverfi.
Á sama tíma séu skipin sem hingað sigla að stækka, fleiri gámahæðir séu á þeim og þar með myndist vinnuhljóð í meiri hæð en áður. Einnig berist hávaði frá vélum, ljósavélum, frystigámum og frá vinnu við lestun og losun.
„HER hafa á síðustu árum borist kvartanir um ónæði og hávaða sem veldur næturtruflunum í Vogahverfi, Heimum, Laugarneshverfi, Teigum og jafnvel Grafarvogi. Í lok síðasta árs og í byrjun þessa fjölgaði kvörtunum mjög mikið og hafa aldrei verið fleiri. Uppruni ónæðis er sagður vera frá vinnu á hafnarsvæði og frá ljósavélum skipa og hafa íbúar tekið upp myndbönd og birt á hverfissíðum og sent HER,“ segir í umsögninni. Stofnunin hefur byrjað hljóðmælingar til að kanna hvort ákvæði hávaðareglugerðar séu brotin og staðfesta uppruna hávaðans. Telur hún að meta þurfi áhrif hávaða sem berst frá breyttu hafnarsvæði til íbúðabyggðar og gera grein fyrir mótvægisaðgerðum.
Getur komið til árekstra
HER bendir á að íbúðasvæðum í nágrenni Sundahafnar sé að fjölga því uppbygging sé í gangi í Vogahverfi, Ártúnshöfða, Bryggjuhverfi og Gufunesi. Fyrirséð sé að árekstrar geti orðið vegna mengunar sem berst frá hafnsækinni starfsemi. „Hvað varðar aðra valkosti telur HER að kanna ætti aðra staðsetningu í nágrenni borgarinnar, þar sem minni líkur eru á ónæði frá hafnarstarfsemi í íbúðabyggð,“ segir í umsögn heilbrigðiseftirlitsins.
Fulltrúar meirihlutaflokkanna, Samfylkingar, Pírata og Vinstri grænna, í umhverfis- og heilbrigðisráði benda á í bókun að Sundahöfnin sé meginflutningsgátt til og frá landinu og nauðsynlegt sé að þeir innviðir sem þar hafa byggst upp nýtist til framtíðar. Það væri hvorttveggja óumhverfisvænt og samfélagslega óhagkvæmt að leggja niður núverandi starfsemi og myndu ótímabærar afskriftir fjárfestinga og aukinn akstur fara út í verðlag.
Á sama tíma þurfi að lágmarka ónæði í nærliggjandi byggðum og tryggja að starfsemin skerði ekki lífsgæði íbúa. Í því skyni þurfi að efla hljóðvarnir, bæta ásýnd og tryggja að starfsleyfum sé fylgt.
Fyrirhuguð hafnargerð í Sundahöfn á vegum Faxaflóahafna felur m.a. í sér lengingu Skarfabakka til suðurs að Kleppsbakka, uppfyllingu og landgerð og aflagningu eldri bakka í Vatnagörðum.
Viðamesta verkið verður landfylling fyrir framan vöruhótel Eimskips. Áætlað er að í fyllinguna fari 1.125.000 rúmmetrar efnis. Við þessa framkvæmd verður til 300 metra langur nýr hafnarbakki en eldri bakkar, alls um 770 metrar, leggjast af. Með landgerðinni verður til 75 þúsund fermetra svæði fyrir gáma og aðra hafnarstarfsemi. Efni í landgerðina mun að mestu fást með dælingu af hafsbotni en einnig mun hluti þess koma frá námum á landi. Áætlað er að hefja framkvæmdir haustið 2022. Fyrir liggur samþykkt aðalskipulag.