Á vefsíðu Heimkaupa er hægt að nálgast uppskriftir frá Lindu.
Á vefsíðu Heimkaupa er hægt að nálgast uppskriftir frá Lindu.
Netverslun „Frá því að þú pantar vörurnar er í raun klukkutími þangað til við leggjum af stað.

Netverslun

„Frá því að þú pantar vörurnar er í raun klukkutími þangað til við leggjum af stað. Með þessari viðbót erum við að auka enn á þjónustuna við okkar viðskiptavini,“ segir Guðmundur Magnason, framkvæmdastjóri Heimkaupa, í samtali við ViðskiptaMoggann. Vísar hann í máli sínu til þess að nú má finna uppskriftir eftir áhrifavaldinn Lindu Ben á vefsíðu fyrirtækisins. Þannig geta viðskiptavinir keypt innihaldsefni uppskriftarinnar og eldað samkvæmt leiðbeiningum. Svipar þessu mjög til þjónustu fyrirtækja á borð við Eldum rétt þar sem viðskiptavinir geta keypt svokallaða matarpakka. „Hjá okkur geturðu pantað vörurnar samdægurs og það líða mest tvær klukkustundir þar til hráefnin eru komin heim til viðskiptavina óski þeir eftir því. Hjá fyrirtækjum eins og Eldum rétt þarf fólk að panta í vikunni á undan og við þykjumst vita að það eigi ekki upp á pallborðið hjá öllum. Við sendum okkar því innan sama dags. Þetta er í raun svakaleg þjónusta,“ segir Guðmundur og bætir við að vörurnar séu keyrðar út frá morgni til kvölds. Fólk geti því valið hvenær það vill fá vörurnar sendar heim. Ekki þarf að greiða sendingarkostnað.

Segir Guðmundur að netverslun með matvöru sé sífellt að færast í vöxt. „Það er mikill vöxtur hjá okkur og það eru þúsundir sem kaupa mat frá okkur í hverjum mánuði. Matvaran er alltaf að stækka og er nú orðin stærri en sérvaran hjá okkur. Við erum með um sjö þúsund vörunúmer á meðan hefðbundin Bónus-verslun er með kannski 3.500 vörunúmer. Fólk þarf því ekkert að kaupa það sem er í uppskriftunum en þær eru hugsaðar til að flýta fyrir og gefa fólki hugmyndir.“