Höfuðhögg Geir Guðmundsson veit ekki hvenær hann má spila á ný.
Höfuðhögg Geir Guðmundsson veit ekki hvenær hann má spila á ný. — Morgunblaðið/Eggert
Geir Guðmundsson handknattleiksmaður missir væntanlega af næstu leikjum Hauka eftir að hafa fengið þungt höfuðhögg í leik liðsins gegn ÍR í fyrrakvöld. „Ég er með hausverk og því fylgir ógleði sem kemur og fer.
Geir Guðmundsson handknattleiksmaður missir væntanlega af næstu leikjum Hauka eftir að hafa fengið þungt höfuðhögg í leik liðsins gegn ÍR í fyrrakvöld. „Ég er með hausverk og því fylgir ógleði sem kemur og fer. Ég er mjög orkulaus og viðkvæmur fyrir hávaða og birtu. Þegar ég er orðinn einkennalaus undir áreynslu er ég orðinn nægilega góður til þess að spila á nýjan leik að sögn lækna. Ég veit hins vegar ekkert hvað það mun taka langan tíma,“ sagði Geir í gær en ítarlegt viðtal er við hann á mbl.is/sport/handbolti.