Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Nú ætti allt að komast í fullan gang aftur,“ segir Þórarinn Finnbogason veitingamaður á Café Mílanó í Reykjavík. „Síðustu vikur hafa aðeins 20 manns mátt vera hér í húsi í einu en núna getum við verið með nánast fullan sal eða 50 gesti. Þetta er algjör bylting og strax og fréttir um rýmri fjöldatakmarkanir komu brá hér fyrir fastakúnnum sem ég hafði ekki séð lengi. Margir hafa haldið sig í kúlunni sinni í mjög langan tíma og fagna því nú að komast aftur á kaffihús.“
Í dag taka gildi nýjar reglur um fjöldatakmarkanir, byggðar á tillögum Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis til Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra, sem ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær.
Sagði Svandís eftir fundinn að Íslendingar ættu að geta glaðst yfir þeim tilslökunum sem nú taka gildi, en meginreglan er sú að 50 manns að hámarki mega vera á sama stað í einu. Í verslunum, á söfnum, kirkjum og tilteknum viðburðum mega vera allt að 200 manns. Samkvæmt þessu verða til dæmis jarðarfarir ekki háðar jafn ströngum fjöldatakmörkunum og verið hefur en síðustu misseri hefur reglan verið sú að aðeins nánasta fjölskylda hins láta hefur getað verið viðstödd.
Áhorfendur aftur
Í sundlaugum og á skíðasvæðum verður heimilt að taka á móti 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta. Á líkamsræktarstöðvum mega mest vera 50 manns í rými. Á íþróttakeppnum verður heimilt að hafa áhorfendur, samkvæmt fyrrgreindum reglum um hámarksfjölda í húsi hverju sinni.
Reglur um grímunotkun verða óbreyttar og áfram verður tveggja metra nándarregla meginviðmið. Þetta er gerlegt vegna góðrar stöðu á kórónuveirufaraldrinum, smit eru fá og öflug gát á landamærum. Ekki er þó hægt að fullyrða að landið sé veirufrítt, og því verður þörf áfram á góðum smitvörnum, að sögn sóttvarnalæknis.
Byrja á plokkfiski
Margir munu efalaust fagna því að veitingastofa IKEA í Kauptúni í Garðabæ verður opnuð að nýju í dag eftir langt stopp. Þar verður salarkynnum skipt í þrennt og í hverju rými verða sæti fyrir 50 manns. „Við byrjum á föstu réttunum; sænskum kjötbollum, kjúklingi og plokkfiski. Þegar svo líður lengra fram í vikuna verður úrvalið meira og matseðillinn fjölbreyttari,“ sagði Stefán R. Dagsson framkvæmdastjóri IKEA í samtali við Morgunblaðið í gær. Raunar hafa síðustu vikur verið nýttar vel því nú er búið að skipta um gólfefni og húsgögn í veitingastofunni, mála veggi og færa sitthvað í nýjan búning. Viðskiptavinir koma því á enn betri stað, hvort heldur er matsölustað eða kaffihús.
Rýmri reglur í skólastarfi
Hvað skólastarf áhærir er mesta breytingin í sóttvörnum sú að tveggja metra reglan er afnumin og nú mega 150 manns koma saman, það er frá og með komandi mánaðamótum. Sé ekki unnt að halda eins metra fjarlægð skulu nemendur og starfsfólk nota grímu. Viðburðir tengdir starfi eða félagslífi framhaldsskóla, svo sem fyrirlestrar, ræðukeppnir og slíkt, eru heimilir í skólabyggingum með áðurnefndum fjölda- og nálægðartakmörkunum. Reglur fyrir háskóla eru í sama dúr.
„Þessar opnanir eru mikið fagnaðarefni. Nemendur og starfsfólk hér hafa farið mjög gætilega og gætt smitvarna, rétt eins og samfélagið allt. Sem betur fer sjáum við fyrir endann á þessu ástandi,“ segir Steinn Jóhannsson rektor Menntaskólans við Hamrahlíð í Reykjavík.
Staðkennsla hefur verið með hefðbundnu sniði frá 1. febrúar síðastliðnum; eins metra fjarlægðarregla í stofum og allir með grímu. Svo verður áfram, en stóra breytingin er sú að svigrúm verður fyrir félagslíf og samkomur í skólanum. Fleiri geta mætt í matsal og sömuleiðis á viðburði í félagslífinu. Nefnir Steinn þar ræðukeppnina Morfís og Gettu betur á RÚV , hvort tveggja viðburði sem eru á dagskrá í vikunni.
Aðeins 17 í einangrun
Ekkert kórónuveirusmit greindist innanlands síðasta sólarhring. Í gær voru aðeins 17 í einangrun, sem er fækkun um átta frá því á mánudag. Níu voru á sjúkrahúsi rétt eins í fyrradag.Á landamærunum greindist einn með mótefni við veirunni.
Tekin voru 1.447 sýni, þar af voru einkennasýnatökur 1.188 talsins.
Aðeins 12 voru í gær í einangrun á höfuðborgarsvæðinu, tveir á Suðurnesjum, tveir á Norðurlandi eystra og einn á Suðurlandi. 14 daga nýgengi innanlandssmita á hverja 100 þúsund íbúa er komið niður í 1,4. Alls voru 24 í sóttkví og 882 í skimunarsóttkví.
80-90% búin í bólusetningu
• 90 ára og eldri fengu seinni sprautu í gær Um 850 manns voru bólusettir á Suðurlandsbraut 34 í gær með mjög góðum árangri, að sögn Ragnheiðar Óskar Erlendsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu.Ragnheiði telst til að 80-90% aldurshópsins, þ.e. eldri en 90 ára, séu nú bólusett. 750 komu í sína aðra sprautu í gær og teljast þar með ónæmir að viku liðinni, alltént að svo miklu leyti sem fullyrða má að ónæmi sé náð. 100 voru að koma í fyrri sprautuna og bíða því í þrjár vikur eftir þeirri seinni. Bólusett var með efni frá Pfizer.