Undanfarið hefur Linda Pétursdóttir verið að hjálpa konum að losna við aukakílóin með því að vinna í hugsunum sínum.
Undanfarið hefur Linda Pétursdóttir verið að hjálpa konum að losna við aukakílóin með því að vinna í hugsunum sínum. Þar vísar hún til frum- og framheila en hún segir frumheilan vera þann sem stjórni vanalega hvötum okkar og geri það að verkum að við tökum óskynsamlegar ákvarðanir þegar snýr að mataræði. Sjálf fastar Linda alltaf frá kvöldmat og fram að hádegismat daginn eftir. Hún segist ekki vera á neinum ákveðnum kúr og leyfi sér allt innan skynsemismarka. Það hefur verið mikið að gera hjá Lindu sem virðist vera með alla hluti á hreinu. Hún viðurkennir þó í viðtali við þá Loga Bergmann og Sigga Gunnars í Síðdegisþættinum þar sem hún svarar tuttugu ógeðslega mikilvægum spurningum að hana vanti eitt í lífið og það sé kærasti. Viðtalið við Lindu má nálgast á K100.is.