Steik Mest er flutt inn til landsins af fersku svína- og nautakjöti.
Steik Mest er flutt inn til landsins af fersku svína- og nautakjöti. — Morgunblaðið/Eggert
Landsréttur dæmir að gjald sem fyrirtæki greiða fyrir tollkvóta vegna innflutnings búvara teljist skattur. Stjórnvöldum sé óheimilt að leggja á skatta og sé þessi gjaldtaka því ekki talin samrýmast ákvæðum stjórnarskrár.

Landsréttur dæmir að gjald sem fyrirtæki greiða fyrir tollkvóta vegna innflutnings búvara teljist skattur. Stjórnvöldum sé óheimilt að leggja á skatta og sé þessi gjaldtaka því ekki talin samrýmast ákvæðum stjórnarskrár. Féllst Landsréttur á kröfu innflutningsfyrirtækis um endurgreiðslu á gjaldi fyrir tollkvóta á árinu 2018 og sneri með því við dómi héraðsdóms.

Stjórnvöld hafa samið við Evrópusambandið um heimild til innflutnings á tilteknu magni búvara á ári hingað til lands. Heimildirnar eru auglýstar reglulega og fyrirtækjum gefinn kostur á að bjóða í þá. Eftirspurn hefur verið eftir þessum heimildum og var verðið tiltölulega hátt eftir að innflutningurinn var heimilaður. Samkvæmt búvörulögum hefur landbúnaðarráðherra heimildir til að ákveða með reglugerð hvernig velja skal á milli þeirra sem gera tilboð og við hvaða boð, eða aðra fjárhæð, skuli miða hið álagða gjald.

Fyrirtæki innan Félags atvinnurekenda hafa staðið í málaferlum vegna útboðsgjaldsins. Í þessu máli var ríkið dæmt til að endurgreiða Ásbirni Ólafssyni ehf. útboðsgjald sem fyrirtækið greiddi á árinu 2018 fyrir innflutning á tveimur tímabilum, samtals rúmar 17 milljónir kr., auk málskostnaðar. Benti dómurinn á fortakslaust bann í stjórnarskrá við að stjórnvöld ákveði hvort leggja skuli á skatt, breyta skatti eða afnema. Útboðsgjaldið sem heimilað er í búvörulögum var ekki talið styðjast við lögmæta skattlagningarheimild og væri því ógilt.

Reglum um tollkvóta var breytt í byrjun árs 2020, eftir að málið var höfðað, og leiddi það til lækkunar á verði fyrir tollkvóta. Úthlutuninni var breytt tímabundið til fyrra horfs í desember sl. og hækkaði gjaldið þá aftur. Dómurinn tekur því til sama fyrirkomulags og gildir nú.