Sparneytni Skrúfan verður fimm metrar í ummál.
Sparneytni Skrúfan verður fimm metrar í ummál. — Ljósmynd/Armon
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Unnið er af fullum krafti við Baldvin Njálsson GK, nýjan flakafrystitogara Nesfisks ehf. í Garði, í Armon-skipasmíðastöðinni í Vigo á Spáni.

Ágúst Ingi Jónsson

aij@mbl.is

Unnið er af fullum krafti við Baldvin Njálsson GK, nýjan flakafrystitogara Nesfisks ehf. í Garði, í Armon-skipasmíðastöðinni í Vigo á Spáni. Útlit er fyrir að áform um að skipið verði afhent fyrir árslok standist og hefur kórónufaraldurinn ekki enn sem komið er tafið smíðina.

Búnaði „sópað“ um borð

Samið var um smíði skipsins haustið 2019 og var skipið sjósett hjá Armon fyrir viku og í vikunni var brúin hífð á skipið og spilin um borð. Fyrirtækið Skipasýn í Reykjavík hannar skipið og segir Sævar Birgisson framkvæmdastjóri að síðustu daga hafi búnaði á millidekk verið „sópað“ um borð og síðan taki hvert verkefnið við af öðru um borð í skipinu næstu mánuði. Mikil reynsla sé hjá Armon og stöðin afhendi nokkur skip árlega.

Vöruhótel og sjálfvirkni

Skipið verður allt hið fullkomnasta, rúmlega 66 metrar að lengd og 16 metrar á breidd. Aðgerðar- og flökunarbúnaður og færibönd er meðal þess sem kemur frá fyrirtækinu Klaka í Kópavogi, sjálfvirkur búnaður til frystingar, pökkunar og flutnings niður í lest og vöruhótel kemur frá norska fyrirtækinu Optimar og frystivélar frá spænsku fyrirtæki.

Þjarkur í svokölluðu vöruhóteli sér um að tegundagreina og flokka fiskinn eftir pökkun. Þaðan fer fiskurinn í lestina, sem er á tveimur hæðum, alls um 1.600 rúmmetrar. Staflari sér um að stafla og raða pökkuðum afurðum á bretti þar sem hann verður tilbúinn til löndunar og raunar fyrir kaupendur. Mikil áhersla er lögð á sjálfvirkni og að fækka erfiðum störfum.

Skipið verður með 3.000 kW Wärtsilä-aðalvél og skrúfan verður fimm metrar í ummál. Áhersla er lögð á sparneytni.