Sauðfé Óhappið varð við umhleðslu sýkts farms sauðfjárhræja.
Sauðfé Óhappið varð við umhleðslu sýkts farms sauðfjárhræja. — Morgunblaðið/Árni Torfason
Blóð og vökvi úr riðusmituðum sauðfjárhræjum helltist niður í jarðveg á gámaþjónustusvæði á Akranesi í gær.

Blóð og vökvi úr riðusmituðum sauðfjárhræjum helltist niður í jarðveg á gámaþjónustusvæði á Akranesi í gær. Mikill þrýstingur hafði myndast af völdum gasmyndunar í hræjunum sem verið var að flytja til brennslu á Suðurnesjum, með þeim afleiðingum að hleri á ofanverðum gámnum gaf sig. Greint var frá þessu á vef Matvælastofnunar.

Atvikið uppgötvaðist áður en komið var að Hvalfjarðargöngum en þá hafði bifreið verið stöðvuð og hugað að ástandi gáma tvisvar. Atvikið var tilkynnt til Matvælastofnunar sem fyrirskipaði stöðvun flutningsins. Á gámaþjónustusvæðinu á Akranesi var ástand gámsins kannað að nýju og hafist handa við að færa hluta farmsins í annan gám. Við það helltist blóð og annar vökvi úr farminum niður. Þrif og sótthreinsun svæðisins á Akranesi þar sem umhleðsla átti sér stað er lokið. Jarðvegsskipti munu fara fram í þeim tilgangi að fjarlægja smitefnið eins og kostur er. Svæðið verður í framhaldinu girt af í varúðarskyni til að fyrirbyggja smit í sauðfé. karitas@mbl.is