Rannsókn Lögreglan hefur lagt hald á vopnið sem notað var.
Rannsókn Lögreglan hefur lagt hald á vopnið sem notað var. — Morgunblaðið/ Íris Jóhannsdóttir
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu telur sig hafa fundið skotvopnið sem notað var þegar Armando Bequiri var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í Rauðagerði laugardagskvöldið 13. febrúar. Þetta segir Margeir Sveinsson yfirlögregluþjónn.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu telur sig hafa fundið skotvopnið sem notað var þegar Armando Bequiri var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í Rauðagerði laugardagskvöldið 13. febrúar. Þetta segir Margeir Sveinsson yfirlögregluþjónn.

„Eftir bráðabirgðaniðurstöðu sérfræðinga má áætla að svo sé; að þetta sé vopnið sem var notað í þessu tilviki,“ segir Margeir. Hann vill ekkert tjá sig um hvenær lögreglan lagði hald á vopnið eða nokkuð nánar um það.

Bequiri hlaut níu skotáverka, meðal annars á lífsnauðsynleg líffæri, höfuð og bol, samkvæmt bráðabirgðaskýrslu réttarmeinafræðings vegna réttarkrufningar.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fjóra og gerði húsleit á sex stöðum í umdæminu og utan þess á fimmtudagsmorgun en aðgerðirnar tengjast rannsókninni á morðinu í Rauðagerði. Margeir segir að fólkinu sem handtekið var á fimmtudag hafi verið sleppt að loknum skýrslutökum og að rannsókn málsins miði almennt vel. Lögregla telur að manndrápið hafi verið framið í samverknaði nokkurra og jafnvel með hlutdeild annarra líkt og gögn og umfang málsins bera með sér. Margeir segir að lögreglan telji sig vera með þá aðila sem komi hvað mest að málinu; meðal annars þann sem framdi morðið. johann@mbl.is.