Verk eftir Þurí Ósk Axelsdóttur.
Verk eftir Þurí Ósk Axelsdóttur.
Opið hús og listasmiðja verður hjá Grósku, félagi myndlistarmanna í Garðabæ, í Gróskusalnum við Garðatorg 1 á morgun kl. 13-15. Öllum er velkomið að koma og fylgjast með lifandi sköpun og taka þátt í listasmiðjunni.
Opið hús og listasmiðja verður hjá Grósku, félagi myndlistarmanna í Garðabæ, í Gróskusalnum við Garðatorg 1 á morgun kl. 13-15. Öllum er velkomið að koma og fylgjast með lifandi sköpun og taka þátt í listasmiðjunni. Gætt er að sóttvörnum og fjarlægðarmörkum þannig að gleðjast má hóflega saman. Félagsmenn í Grósku eru um 70 og nýjum félögum er tekið fagnandi. Fólk sem býr eða vinnur í Garðabæ og fæst við myndlist, hvort sem er í tvívíðu eða þrívíðu formi, er hvatt til að sækja um inngöngu í félagið með því að senda póst á groskamyndlist@gmail.com. Einnig er hægt að sækja um á facebook-síðu Grósku.