Jón Ólafur Halldórsson
Jón Ólafur Halldórsson
Eftir Jón Ólaf Halldórsson: "Það er afstaða SVÞ að ekki sé hægt að styðja afgreiðslu frumvarpsins ... nema því verði breytt á þann hátt að innlend netverslun með bjór og léttvín verði heimiluð samhliða því að innlendum framleiðendum verði heimiluð smásala á framleiðslustað."

Þegar allt í kringum okkur er gengið hröðum skrefum og stórum til framtíðar, verða stuttu skrefin þannig að engu er líkara en að um kyrrstöðu eða afturför sé að ræða. Þetta má segja um frumvarp dómsmálaráðherra sem kemur til móts við umtalsverða grósku smærri brugghúsa er sprottið hafa upp um land allt. Verði það að lögum fá brugghúsin leyfi til þess að selja sitt fjölbreytta úrval af handverksbjór á framleiðslustað. Sú nýbreytni er til þess fallin að auka tilbreytingu í verslun og vera eftirsótt viðbót í ferðaþjónustu.

Jafnræði í nýjum veruleika

Veruleikinn hefur þó farið mörgum skrefum fram úr okkur með tilkomu alþjóðlegrar vefverslunar. Í vaxandi mæli fá Íslendingar vín og bjór sent heim til sín eftir þeim leiðum. Umfang netverslunar vex með ógnarhraða og auglýsingar frá vín- og bjórframleiðendum erlendis eru áberandi á samfélagsmiðlum, þeim miðlum sem eru orðin hin almenna leið til að afla sér upplýsinga og þekkingar. Í umsögn Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ) um það takmarkaða afnám einkaleyfis ÁTVR til smásölu áfengis, sem frumvarpið gerir ráð fyrir, er einmitt lögð höfuðáhersla á jafnræði til vefverslunar.

Óboðlegt viðskiptaumhverfi

Það hreinlega gengur ekki upp að erlendum vefverslunum sé heimilt að höndla án takmarkana með bjór og léttvín á íslenskum markaði á sama tíma og innlendar vefverslanir eru útilokaðar. Veruleikinn er einfaldlega sá að innlendir bjórframleiðendur flytja nú þegar afurðir sínar frá Íslandi í þeim eina tilgangi að senda þær aftur til landsins í gegnum erlendar vefverslanir, t.d. verslun Amazon í Bretlandi. Svona viðskiptahættir eru ekki boðlegir í dag, hvort sem litið er til jafnræðissjónarmiða eða kolefnisfótspors.

Hverjir réðu afturförinni?

Á undirbúningsstigi umrædds frumvarps voru drög að því birt í tvígang á samráðsgátt stjórnvalda, www.Island.is. Í bæði skiptin var gert ráð fyrir að heimilaður yrði rekstur innlendra vefverslana með áfengi í smásölu til neytenda með vissum takmörkunum. Til grundvallar lágu þau rök að æskilegt væri að jafna stöðu innlendrar og erlendrar verslunar í ljósi þess að almenningi væri heimilt að kaupa áfengi í gegnum netverslun frá útlöndum og flytja til landsins til einkaneyslu á meðan slík verslun væri ekki heimil í vefverslun sem starfrækt væri hér á landi. Með því að heimila innlenda vefverslun með áfengi væri lagaleg staða innlendrar og erlendrar vefverslunar með áfengi jöfnuð. Vandséð er hvernig hægt er að réttlæta bann við atvinnurekstri sem snýst um sölu á vöru sem almenningur getur flutt inn að vild til einkaneyslu. Fróðlegt væri að fá upplýst hvers vegna þessu sjálfsagða jafnræðissjónarmiði var kippt út úr frumvarpinu. Hverjir knúðu fram þá afturför?

Skref sem myndu bæta stöðuna

SVÞ hafa ávallt lagt ríka áherslu á viðskiptafrelsi. Afstaða samtakanna er sú að stefna beri að því í markvissum skrefum að aflétta einokun ríkisins á viðskiptum með bjór og vín. Mikilvægt er að framkvæmdin sé skýr og afmörkuð þannig að engin óvissa skapist og vel sé um alla umgjörð búið. Reynsluna af hverju skrefi í afnámi einokunar á verslun með áfengi þarf að meta og hafa til hliðsjónar við töku næsta skrefs. Að sjálfsögðu þarf að gæta að lýðheilsusjónarmiðum og vönduðum vinnubrögðum í hvívetna, eins og gildir um alla þróun verslunar og þjónustu. Það er afstaða SVÞ að ekki sé hægt að styðja afgreiðslu frumvarpsins, sem hér er til umræðu, þótt það sé jákvætt í eðli sínu, nema því verði breytt á þann hátt að innlend netverslun með bjór og léttvín verði heimiluð samhliða því að innlendum framleiðendum verði heimiluð smásala á framleiðslustað. Það væru skref sem um munaði og myndu stuðla að jafnræði í verslun og jafnfætisstöðu í samkeppni, bæði íslenskra vefverslana og framleiðenda á Íslandi.

Höfundur er formaður Samtaka verslunar og þjónustu.

Höf.: Jón Ólaf Halldórsson