Gosstöðvarnar Eldgosið er í Geldingadal sunnan Fagradalsfjalls. Gossprungan er um 500-700 metra löng og hraun rann til vesturs og suðurs, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni.
Gosstöðvarnar Eldgosið er í Geldingadal sunnan Fagradalsfjalls. Gossprungan er um 500-700 metra löng og hraun rann til vesturs og suðurs, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. — Ljósmynd/Landhelgisgæslan
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Eldgos hófst um klukkan 20.45 í gærkvöldi í Geldingadal sunnan Fagradalsfjalls á Reykjanesskaga um 8 km norðaustur af Grindavík. Um er að ræða sprungugos og flæddi hraunið í vestur og suður. Er þetta í fyrsta skipti í 800 ár sem gýs á þessum slóðum.

Eldgos hófst um klukkan 20.45 í gærkvöldi í Geldingadal sunnan Fagradalsfjalls á Reykjanesskaga um 8 km norðaustur af Grindavík. Um er að ræða sprungugos og flæddi hraunið í vestur og suður. Er þetta í fyrsta skipti í 800 ár sem gýs á þessum slóðum.

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni var gossprungan um 500-700 metrar að lengd. Lítil gosstrókavirkni var á svæðinu en undir miðmætti var hraunið innan við 1 ferkílómetri að stærð. Í tilkynningu frá björgunarsveitinni Þorbirni í gærkvöldi sagði að eldgosið væri á besta mögulega stað með tilliti til hraunrennslis. Engin hætta væri á ferðum fyrir íbúa Grindavíkur. Þá væri vindátt með besta móti og fjarlægðin í eldgosið mikil. Þó var varað við hugsanlegri gasmengun frá gosinu og var Krýsuvíkurskóli rýmdur í öryggisskyni. Var fjöldahjálparstöð opnuð í Hópsskóla í Grindavík í gærkvöldi.

Sigmundur Einarsson, jarðfræðingur og sérfræðingur um eldgos á Reykjanesskaga, sagði í gærkvöldi, að eldgosið væri afar lítið miðað við fyrri gos á Íslandi, en að það gæti þó stækkað.

„Eins og staðan er núna er þetta bara smágos,“ sagði Sigmundur. „Þetta er bara framhald af því sem hefur verið að gerast þarna síðustu árþúsund og á þessu svæði hafa bara verið smágos hingað til. Ég býst við að það muni ekki breytast.“

Veðurstofunni barst tilkynning um gosið klukkan 21.40 í gærkvöldi og í kjölfarið var staðfest að um gos væri að ræða í gegnum vefmyndavélar og gervitunglamyndir. Lítill órói sást á jarðskjálftamælum í aðdraganda gossins.

Almannavarnir biðluðu til fólks að fara ekki nærri gosupptökum og vera ekki á ferðinni á svæðinu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði bæði Reykjanesbraut við Straumsvík og Krýsuvíkurvegi eftir að það fréttist að eldgos væri hafið. Sagði lögreglan við mbl.is að stríður bílastraumur hafi verið úr höfuðborginni og að stefnt hafi í öngþveiti.

Rakel Lilja Halldórsdóttir, íbúi í Grindavík, sagðist hafa séð gosið vel þegar það hófst. Hún sagði að bæjarbúar væru órólegir. „Þetta virðist vera nær en ég bjóst við að þetta yrði. Ég bjóst ekki við að sjá þetta út um gluggann,“ sagði hún.

Loftrými yfir gossvæðið var skilgreint sem hættu- eða haftasvæði fyrir flug og bannsvæði dróna. Keflavíkurflugvelli var lokað tímabundið en hann síðan opnaður á ný og hefðbundið flug heimilt yfir gossvæðinu.