Munir Stjórnendur Fyrir alla muni, Viktoría Hermannsdóttir og Sigurður Pálmason.
Munir Stjórnendur Fyrir alla muni, Viktoría Hermannsdóttir og Sigurður Pálmason.
Nokkrir þeirra muna sem fjallað hefur verið um í sjónvarpsþáttunum Fyrir alla muni á RÚV verða til sýnis á morgun, sunnudag, kl.

Nokkrir þeirra muna sem fjallað hefur verið um í sjónvarpsþáttunum Fyrir alla muni á RÚV verða til sýnis á morgun, sunnudag, kl. 14-17 í Þjóðminjasafni Íslands og munu stjórnendur þáttanna, Sigurður Pálmason og Viktoría Hermannsdóttir, ásamt Freyju Hlíðkvist Ó. Sesseljudóttur, sérfræðingi í safninu, spjalla við gesti og segja frá gripunum.

Kl. 14.15 mun fulltrúi Michelsen-fjölskyldunnar færa Þjóðminjasafni Íslands formlega að gjöf merkilegan jakka sem varðveist hefur úr Petsamó-ferðinni frá árinu 1940 en margir farþegar rituðu nöfn sín á jakkann og er hann ekki síst merkilegur fyrir þær sakir, segir í tilkynningu frá safninu.

Aðgangur er ókeypis fyrir handhafa árskorts og fyrir börn að 18 ára aldri en annars gildir stakur aðgöngumiði. Gestir eru beðnir um að virða þær sóttvarnareglur sem eru í gildi og grímuskylda og tveggja metra reglan gildir á safninu.