30 ára Andri Viðar verður þrítugur á morgun. Hann er Reykvíkingur en býr á Selfossi. Hann er með sveinspróf í rafvirkjun frá FB og stundar nám í rafiðnfræði við HR. Andri starfar sem rafvirki hjá Gjörva. Maki: Tinna Dögg Guðlaugsdóttir, f.
30 ára Andri Viðar verður þrítugur á morgun. Hann er Reykvíkingur en býr á Selfossi. Hann er með sveinspróf í rafvirkjun frá FB og stundar nám í rafiðnfræði við HR. Andri starfar sem rafvirki hjá Gjörva.

Maki: Tinna Dögg Guðlaugsdóttir, f. 1983, lögfræðingur en er í fæðingarorlofi.

Dætur: Thelma Björk, f. 2020, og Stella, f. 2021, d. 2021. Stjúpdætur eru Sara Lind, f. 2005, og Bryndís Ýr, f. 2007.

Foreldrar : Oddur Hannes Magnússon, f. 1962, bifvélavirki og Guðrún Þuríður Hallgrímsdóttir, f. 1969, aðstoðarmaður tannlæknis. Þau eru búsett í Reykjavík.