Samstarfskonur Í Græna kompaníinu í Grundarfirði. Frá vinstri talið, Signý Gunnarsdóttir, Guðrún Lilja Magnúsdóttir og Karitas Eiðsdóttir.
Samstarfskonur Í Græna kompaníinu í Grundarfirði. Frá vinstri talið, Signý Gunnarsdóttir, Guðrún Lilja Magnúsdóttir og Karitas Eiðsdóttir.
„Bækur, garn og kaffi eru góð blanda.

„Bækur, garn og kaffi eru góð blanda. Hér í versluninnni, sem er við Hrannarstíginn miðsvæðis í bænum, ætlum við að skapa þægilegt andrúmsloft og veita fólki góða þjónustu,“ segir Signý Gunnarsdóttir sem ásamt Lilju Magnúsdóttur og Karitas Eiðsdóttur stendur að rekstri Græna kompanísins sem opnað verður formlega í Grundarfirði í dag. Staðnum lýsir Signý sem blöndu af bókabúð og hannyrðaverslun sem að auki er kaffihús með léttum veitingum á góðu verði.

„Lilju langaði að opna bókabúð og Karitas, sem er mikið í handavinnunni, átti sér draum um verslun með vörum til slíks. Fékk garnlager úr verslun úti í Ólafsvík sem lagði upp laupana og auðvitað var mörgu öðru bætt við svo vöruúrvalið er fjölbreytt. Lilja er bókakona og í búðina núna eru komnar allar nýjustu bækurnar frá forlögum landsins,“ segir Signý.

Samstarfskonurnar þrjár munu skipta með sér vöktum í búðinni. Munu meðal annars bjóða upp á kaffi, bakkelsi og fleira gott.

Stöllurnar þrjár í Grundarfirði fengu húsnæðið við Hrannarstíg afhent 1. mars síðastliðinn. Síðan þá hafa þær verið af krafti að koma öllu í stand; breyta, mála, velja húsgögn og svo framvegis.

Byrjað verður svo að taka á móti viðskipavinum í dag í Græna kompaníinu sem verður opið frá miðvikudegi til og með sunnudegi milli kl. 12 og 18. Ef vel tekst til og viðtökur eru góðar verður einnig opið á mánudögum og þriðjudögum þegar líður lengra fram á vorið, að sögn Signýjar. sbs@mbl.is