Verzlunarskóli Íslands bar sigur úr býtum gegn Kvennaskólanum í Reykjavík í úrslitaviðureign Gettu betur í gærkvöldi. Aðeins munaði fjórum stigum að loknum hraðaspurningum Verzlunarskólanum í vil.

Verzlunarskóli Íslands bar sigur úr býtum gegn Kvennaskólanum í Reykjavík í úrslitaviðureign Gettu betur í gærkvöldi.

Aðeins munaði fjórum stigum að loknum hraðaspurningum Verzlunarskólanum í vil. Tókst skólanum síðan að bæta rækilega við sig og sigraði örugglega með 31 stigi á móti 17 stigum Kvennaskólans.

Eiríkur Kúld Viktorsson, Gabríel Máni Ómarsson og Sigurbjörg Guðmundsdóttir voru í liði Verzlunarskólans,

Hildur Sigurbergsdóttir, Ari Borg Helgason og Áróra Friðriksdóttir skipuðu lið Kvennaskólans.