Vorið kemur.
Vorið kemur. — Morgunblaðið/Hari
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Vikan einkenndist að miklu leyti af fádæma hlýindum , meira og minna um landið allt, þó þeim fylgdi að vísu nokkurt vatnsveður víða. Hæst fór hann í 20,4°C á Dalatanga.

Vikan einkenndist að miklu leyti af fádæma hlýindum , meira og minna um landið allt, þó þeim fylgdi að vísu nokkurt vatnsveður víða. Hæst fór hann í 20,4°C á Dalatanga. Veturinn hefur einnig verið með þeim mildustu, fyrstu farfuglarnir komnir – álft, grágæs, tjaldur og sílamáfur – og vor í lofti.

Hins vegar varð minna vart við jarðskjálfta en fyrri vikur og goseftirvæntingin koðnaði niður. Þó kom fram að á Reykjanesskaga kysu margir að þessu gosi yrði rubbað af, fremur en að vera nötrandi mikið lengur.

Ferðaþjónustan lét í ljós áhyggjur af því að þrátt fyrir að Bretar og Bandaríkjamenn séu langt komnir í bólusetningu og margir þar orðnir ferðafúsir, þá væri þeim ókleift að koma til Íslands út af einhverjum tilmælum frá Brussel, sem íslensk stjórnvöld hefðu í ógáti orðið við.

Ráðherrann Kristján Þór Júlíusson greindi um helgina frá því að hann hefði afráðið að gefa ekki kost á sér í næstu kosningum eftir 35 ára farsælan feril í stjórnmálum. Í Norðausturkjördæmi verður arftaki hans valinn í prófkjöri í lok maí, en tveir hafa lýst áhuga á því og fleiri sjálfsagt von.

Verslun á Suðurlandi er að komast í uppnám vegna þess að Páll Gunnar Pálsson , sem verið hefur forstjóri Samkeppniseftirlitsins í 16 ár, hefur skoðanir á því hverjir megi eiga verslun og hverjir ekki. Í draumkenndri veröld hans búa á Íslandi 360 þúsund sálir, sem allar eru ótengdir aðilar og þekkja hver aðra ekki nema af afspurn.

Leit foreldra í Fossvogi að Degi B. Eggertssyni borgarstjóra hefur enn engan árangur borið.

Tónskáldið Hildur Guðnadóttir fékk enn ein verðlaun fyrir tónlist sína í kvikmyndinni um geðheilbrigði Jókersins, hins forna fjanda Leðurblökumannsins. Að þessu sinni Grammy-verðlaun, en áður hafði hún sópað til sín Óskarnum, Golden Globe og BAFTA.

Þórunn Sveinbjarnardóttir , sem snýr aftur í stjórnmálin í oddvitasæti Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi, ljóstraði upp um þá skoðun sína að fjölflokkaríkisstjórn blasti við í haust. Sem sagt ekki eins flokks meirihlutastjórn, nú eða minnihlutastjórn, eins og venjulega?

Kirkjuþing ákvað að héðan í frá yrðu prestar ráðnir af biskupi með þriggja mánaða uppsagnarfresti. Þeir hafa að undanförnu verið skipaðir til fimm ára og áður ævilangt.

·

Atlantshafið heldur áfram að ganga á suðurströndina, en landrof á Breiðamerkursandi er farið að ógna Suðurlínu Landsnets og þjóðveginum.

Stjórnarandstöðuleiðtoginn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson lagði til við Alþingi, að það bæði fyrrverandi ráðherra afsökunar fyrir að hafa dregið hann fyrir Landsdóm.

Sérfræðingur Náttúrufræðistofnunar sagði engan vafa á að enn væri mygla í Fossvogsskóla, en ekki aðeins myglugró eins og borgarstarfsmenn hefðu látið liggja að. Gróin kæmu úr myglu.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir tók undir þau sjónarmið, að undarlegt væri að hafna viðurkenndum bólusetningarvottorðum, einungis vegna þess að þau væru frá löndum utan Schengen-svæðisins.

Reykjavíkurborg sætti gagnrýni fyrir pukur og leyndarhyggju, þar sem til stendur að veita ýmsum borgarfyrirtækjum og dótturfélögum þeirra undanþágu frá upplýsingalögum.

·

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra boðaði nýja reglugerð, sem opna myndi bólusettu fólki utan Schengen -svæðisins leið inn til Íslands með framvísun bólusetningarvottorðs eða mótefnavottorðs. Ferðaþjónustan gat ekki leynt fögnuði sínum yfir að farið væri að vora að þessu leyti.

Landhelgisgæslan sendi þyrlu eftir tökuliði BBC á vélarvana bát í rjómablíðu undan Ströndum.

Vaxandi verðmunur er á orku vítt og breitt um landið. Kostnaður er lægstur á því ekki kolefnisporlausa Seltjarnarnesi , en hæstur á Hólmavík , en mögulega er ekkert pláss í landinu jafnuppljómað af raflýsingu.

Vegaskemmda hefur orðið vart á Suðurnesjum vegna jarðskjálftahrinunnar.

Tveir starfsmenn hjúkrunarheimilisins Nesvalla greindust með ósmitandi berkla .

Bón fasteignafélagsins Reita um að sameina lóðir gamla pósthússins og gömlu lögreglustöðvarinnar í Pósthússtræti var hafnað. Reitir mega ekki rugla þeim reitum.

·

Fjölmennur foreldrafundur í Fossvogsskóla var sóttur af Skúla Helgasyni , formanni skólaráðs Reykjavíkurborgar, og Helga Grímssyni sviðsstjóra skólasviðs borgarinnar, en þeir og borgin voru harðlega gagnrýnd fyrir sinnuleysi og þess krafist að skólinn yrði rýmdur vegna myglu, sem þar hefur valdið veikindum barna. Dag B. Eggertsson borgarstjóra var hins vegar ekki að finna á fundinum.

Katrín Jakobsdóttir skrifaði grein í Morgunblaðið, þar sem hún hvatti þingmenn til þess að styðja stjórnarskrártillögu sína um auðlindir , birti glefsur úr umsögnum til þingsins um það og stakk upp á að menn reyndu að komast upp úr skotgröfunum og verða sáttir um annað en að vera ósáttir.

Könnun Samtaka atvinnulífsins hjá stjórnendum aðildarfélaga sinna leiddi í ljós ánægju með efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna kórónukreppunnar, en flestum þótti þær vera gagnlegar og hæfilega sértækar.

Tveir menn voru skipaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald vegna morðsins í Rauðagerði .

64 tilkynningar hafa borist um tjón vegna jarðskjálfta, flestar af höfuðborgarsvæðinu. Í fréttum Ríkisútvarpsins var greint frá því að einn skjálftinn hefði verið svo harður að þvottagrind í Bryggjuhverfi hefði skolfið nokkra stund.

Í Grindavík kippa menn sér hins vegar lítið upp við kippina og hefur vinnslan hjá Þorbirni hf. haldið áfram eins og ekkert hafi í skorist.

Þingmenn hafa ekki farið til útlanda á vegum þingsins í heilt ár og hafa sparast við það um 40 milljónir króna af fjármunum skattgreiðenda. Ekki verður heldur séð að lýðveldið eða heimsbyggðin hafi liðið fyrir.

Guðjón Brjánsson tilkynnti að hann myndi hverfa af þingi í lok kjörtímabils, sem kom mörgum á óvart.

·

Í ljós kom að rekstrarhalli Þjóðkirkjunnar í fyrra nam 654 milljónum króna. Sannast þar hið fornkveðna, að dýrt er Drottins orðið.

Ýmis lönd ákváðu að hefja bólusetningu með AstraZeneca á ný, en ekki Ísland. Enginn veit af hverju henni var hætt hér og því síður af hverju hún var ekki hafin eftir að Lyfjastofnun Evrópu gaf því grænt ljós í annað sinn.

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra var snupraður á blaðamannafundi talsmanns rússneska utanríkisráðherrans, að sögn vegna einhvers sem hann hefði sagt í blaðagrein í Mogganum um kjarnorkuvígvæðingu um miðbik liðinnar aldar. Í greininni fannst þó ekkert slíkt, en við eftirgrennslan sagði sendiráðið að um hefði verið að ræða ályktanir ráðuneytisins sem að sjálfsögðu hefðu verið fordæmdar.

Borgaryfirvöld brugðust loks við kröfu foreldra í Fossvogi og rýmdu hið myglaða skólahús. Var börnum kennt úti við, en til stendur að finna annað húsnæði undir kennsluna hið fyrsta.

Í Grímsey er hugað að orkuskiptum, bæði með vindmyllum og sólarorkuveri á þessari þokusælustu ey landsins.

Ríkislögmaður samdi við fjóra fyrrverandi starfsmenn Hafró til að bæta þeim atvinnumissi og starfsæruhnekk við handahófskennd starfslok, sem þeim voru veitt.

Fjórir enn voru handteknir vegna morðsins í Rauðagerði og um leið var felld úr gildi skipun verjandans, Steinbergs Finnbogasonar , sem væri vitni í málinu.