David Molesky
David Molesky
Interiors nefnist sýning sem bandaríski raunsæismálarinn David Molesky opnar og sýnir í Deiglunni á Akureyri í dag, laugardag, kl. 14-17 og á morgun, sunnudag kl. 13-17.
Interiors nefnist sýning sem bandaríski raunsæismálarinn David Molesky opnar og sýnir í Deiglunni á Akureyri í dag, laugardag, kl. 14-17 og á morgun, sunnudag kl. 13-17. Í tilkynningu kemur fram að Molesky bjóði upp á úrval verka sem endurspegli heimsfaraldurinn sem geisað hefur síðasta árið. Molesky hefur síðustu fjóra mánuði dvalið í listabúsetu hérlendis og búið til seríu málverka sem sýna einmana fígúrur sem lýsa þrá eftir samskiptum við umheiminn. „Frekar en að fullvinna allan flötinn skín í teikninguna og ógrunnað hör. Þessi hrái stíll virkjar áhorfandann og leyfir honum að klára myndina í huganum.“