Jeff Beck í stuði í Háskólabíói 2013.
Jeff Beck í stuði í Háskólabíói 2013. — Morgunblaðið/Golli
Virtúós Alice Cooper er ekki í vafa um að Jeff Beck, 76 ára, sé enn þá mest skapandi rokkgítarleikari í heimi og hafi verið það alveg síðan hann var í The Yardbirds. Þetta kom fram í viðtali við hann á BBC.
Virtúós Alice Cooper er ekki í vafa um að Jeff Beck, 76 ára, sé enn þá mest skapandi rokkgítarleikari í heimi og hafi verið það alveg síðan hann var í The Yardbirds. Þetta kom fram í viðtali við hann á BBC. Cooper minnist þess að hafa séð Beck spila með The Yardbirds fyrir meira en fimmtíu árum á eldgamlan Telecaster-gítar sem leit víst út eins og hann hefði dregist lengi á eftir strætó en Beck lét hann hljóma eins og Stradivarius. „Og hann er enn með 'etta.“